Lent í suðri :)

Góðan daginn!

Þá er ég komin og á því búin neinei segi bara svona. Við lentum í gær um klukkan 13:30 og leiðinni var strax haldið í kringluna Smile Að eyða peningum haha. Í kriglunni hittum við Sússu og Berglindi. Það var byrjað á því að éta og svo var skipt liði og fólk fór þangað sem því langaði og reynt var að klára að versla jólagjafir, en þar sem Gummi minn var orðinn vel þreyttur þá urðum við að fara fljótt heim. ( Hann var sko á næturvakt og ekkert búinn að sofa). En svo var skutlað Gummanum heim að sofa en ég og Mamma fórum heim til Geira, Aseneth og Maríönu já og Isabel náttla líka. Þar fengum við rosalega gott að borða það var grýta og hvítlauksbrauð. Maríana tók alveg ástfóstri við mér og var sko alveg til í að sýna mér dótið sitt og allt. En þegar við vorum búin  hjá Geira þá var farið heim og náð í Gumma og svo var farið í kaffi til Stínu. Þegar við vorum búin að drekka Stínu út á gaddinn þá var farið heim að sofa. Planið fyrir daginn í dag er að versla og versla og versla Smile Og matarboð og svo er farið í heimsóknir á morgun. En hafið það gott ætla að fara að telja peningana. Hahahahahhahahahahahahhahahaha


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Eins gott að halda vel í veskið sitt og, halda utan um peningana sína knús á ykkur mamma

Ólöf Karlsdóttir, 20.12.2008 kl. 09:48

2 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús í hús og ljúfar kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 20.12.2008 kl. 23:11

3 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Sakna ykkar ,en ég á nýja inniskó ,þeir eru loðnir og heita vala ,hehe

Ólöf Karlsdóttir, 22.12.2008 kl. 00:49

4 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Ég og mín kæra fjölskylda viljum óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þökkum árið sem er að líða.....Jólakveðja

 Linda og Fjölskylda :):):):)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.12.2008 kl. 00:49

5 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Það er í lamasessi netið hjá Ásdísi það er verið að skipta um kapal eða einhvað svoleiðis Óla

Ólöf Karlsdóttir, 23.12.2008 kl. 11:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband