Bloggfærslur mánaðarins, mars 2010

Já fínt já sæll

Veit ekki alveg af hverju ég er komin hérna inn aftur Grin Ætli maður sakni ekki bloggsíðunnar sinnar svoldið mikið :) Svona innst inni allavega. Fólk er ábyggilega bara búið að gleyma þessari bloggsíðu og þá kemur enginn að kvitta, nema kannski Mamma og jú auðvitað hún Vallý mín :) Núna gerir maður ekkert nema vera á facebook þegar maður er í tölvunni.

Sigurbjörn Valur er með smá kvef. Hann er svo stíflaður í nefinu greyið en sem betur fer alveg hitalaus, en það sem hann er pirraður. Vá það er bara ekkert smá. Ég sjálf náði af einhverri ástæðu eiginlega ekki að sofa neitt í nótt og svo þarf maður að vera með Sigurbjörn aleinn og ósofinn. Enda tel ég mínuturnar þangað til karlinn kemur heim. En jæja ætla að reyna að leggja mig með honum í smá stund hafið það gott og endilega kvittið í þessa prufu. Gaman að prófa bloggið aftur :)


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband