Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Dularfulla lyklahvarfið!!!

Á Djúpavogi. Hehe langaði að hafa einhver djúsi fyrirsögn en ég kem að lyklamálinu á eftir LoL Ætla að byrja á að segja frá helginni.

Föstudagur: Var hérna heima að laga til og gera allt tilbúið fyrir ættarmótið svo um 6 leitið fór ég að sækja Gumma. Lögðum af stað frá Reyðarfirði rétt fyrir 7 og vorum komin á klaustur einhvað á milli 10-12 man ekki alveg en þá var bara byrjað á að setja upp tjaldið og svo var aðeins spjallað og svo var bara farið að sofa.

Laugardagur: Vaknaði um 11 leitið og byrjuðum daginn á að fá okkur kaffibolla og svo um 13:00 var farið í göngutúr. Löbbuðum upp á systrastapa minnir að það heiti það og það var mjög fallegt þar. Vorum komin til baka úr göngunni um 15:00 og þá var bara drukkið meira kaffi og svo tók ég og Gummi smá rúnt síðan um svona  18:00 fékk ég minn daglega hausverk og lagðist inn í tjald í smá tíma og svo var farið inn að borða og svo eftir matinn voru einhver skemmtiatriði. Svo fórum við Gummi inni í tjald að spjalla og svo sofnaði hann mjög snemma sem var ekki nógu gott því hann var víst að passa. Ég var svo viss um að hann hafi verið vakandi þegar ég fór vegna þess að hann opnaði augun og ég var búin að spjalla helling við hann áður en ég fór inn en það versta er að hann mundi ekkert eftir þessu daginn eftir. Kannski var þetta einhvað skrítinn bjór sem hann hafði verið að drekka.

Sunnudagur: Gummi vakti mig klukkan 08:00 og það var bara byrjað á að fara að fá sér kaffisopa og hreyfa Lillu og svona og svo átti að vera myndataka en þar sem flestir voru sofandi varð ekkert úr því. Ég, Gummi, Heiða og Palli fórum á systrakaffi og fengum okkur að borða þar ( Mæli alveg með þeim stað þar er sko góður matur) En svo um 13:00 lögðum við Gummi af stað austur. Wink Við tókum okkur góðan tíma þar sem við vorum búin að ákveða að fara ekki alla leið og skoðuðum alveg helling en svo stoppuðum við á Djúpavogi hentum tjaldinu upp og suðum okkur pulsur. Svo sátum við bara til svona 11 eða 12 og fórum svo að sofa.

Nú skal ég segja frá dularfulla lyklamálinu sem ég leysti í dag. Sko á kvennaklósettinu eru 2 klósett og einn sturtuklefi. Og ég tók eftir því að það var bara happa glappa hvort ég gæti læst að mér og ég var búin að segja Gumma frá þessu og var búin að spá helling í þetta. En svo í dag þá fattaði ég að það er bara einn lykill og það var bara misjafnt hvort hann var á öðru hvoru klósettinu eða í sturtunni. Alveg undarlegt. Þeir ættu að nota tjaldgjaldið og láta gera fleiri lykla Wink

Mánudagur: Ég vaknaði fyrst um 08:00 og fór að ná í Lillu og pissa og svoleiðis en svo lagðist ég inn hjá Gumma og svaf alveg til 11:00 og þá fórum við framm úr. Fengum okkur að eta og tókum svo tjaldið niður og þá var leiðinni haldið til Breiðdalsvíkur. Þegar við komum þangað voru Benni og Oddný edda sofandi en þau vöknuðu bara 2 mín eftir að við komum eða einhvað. En hjá þeim var alveg rosalega gaman. Held að þau hafi sýnt okkur allt dótið sitt og Benni kom og settist hjá mér og var að sýna mér bókina sína og Oddný Edda lærði að segja Gummi og Dísa mér og Gumma til mikillar gleði. Þóra var síðan svo myndarleg að hún var barasta að baka gerði rosalega góðar brauðbollur og það var mjög gott.

Þegar heim var komið var farið í kærkomna sturtu og það var bara æðislegt. Svo fór Gummi að vinna og hér sit ég og Blogga. En fer að segja þetta gott í bili.

ps. Sá minnsta tjald sem ég hef á ævi minni séð og ég var sko ekki að trúa því að maðurinn svæfi í þessu ég sjálf myndi fá geggjað mikla innilokunarkennd. Ætla að setja inn eina mynd af þessu hérna LoL

IMG_0641


Bensínverðið!!!

Ætla þessar hækkanir ekki að hætta. Þetta er orðið bara too mutch. Gummi heldur að bílinn fari með 15.000 kr í bensín til kirkjubæjarklausturs. Nú fer maður að halda meira með þessum Vörubílstjórum. Mér finnst að á meðan verðið er svona hátt á Bensíninu ættu alþingismenn að reyna að fá það í gegn að þeir hætti að taka svona mikið sjálfir fyrir bensínlíterinn. Ég meina borgar maður ekki nógu andskoti mikið í skatta. Blush Úff hvað ég verð reið á að tala um þetta.

Það er nú samt alveg helling meira sem að er að hrjá mig núna það yrði efni í heila sögu þannig að ég ætla ekkert að vera að úthella því yfir ykkur hérna. Þið megið ekki alveg hætta að lesa bloggið mitt  Cool Mig hlakkar alveg rosalega mikið til að fara á ættarmótið. Þetta verður ábyggilega alveg geggjað gaman. Veit ekki alveg hvort að við förum beint á klaustur eða stoppum einhverstaðar á leiðinni svo var Gummi að spyrja hvort ég væri til í að koma heim bara á Mánudeginum hann fer á næturvakt þá og ég var sko ekki lengi að segja JÁ. Maður verður nú að fá einhvað fyrir bensínpeninginn.

Í gær átti ég mjög erfitt með að sofna enda hafi ég sofið til 13:30 og sofnað svo aftur frá svona 19:00 til svona 21:30 sirka var einhvað svo geggjað þreytt. FootinMouth Og já ekki skamm mig ég skammast mín nóg fyrir. En ég náði að sofna á endanum og vaknaði um 9 í morgun. Síðan þá er ég búin að laga vel til inn í eldhúsi en á samt helling eftir. Stend mig sko ekki í þessu. Ætla svo að laga til í bílnum á eftir.

Mikið sakna ég nú Fjölskyldu minnar þarna fyrir sunnan þó það séu alltaf einhver leiðindi í þessari fjölskyldu minni. Liggur við að ég geti sagt við Mömmu jæja hver er í fílu út í hvern núna. Og vil ég bara koma því á Framfæri að öll börnin mín eru jafnvelkomin að koma til mín. Þau verða bara að hafa sig eftir því og helst að reyna að koma þegar ég er í fríi.

Davíð Freyr er algjör gullmoli hann var að reyna að kenna Lillu að heilsa og svo heyrist í Kalla bróður Davíð þetta er afturlöppin og þá segir Davíð og það kom svo beint frá hjartanu - Já, það skiptir engu máli. Haha Hann er bara snilld. Stundum vildi ég að ég byggi nær þeim þannig að ég myndi ekki missa af svona miklu í lífi þeirra. Langar að geta tekið þau með mér í sund eða bíó eða bara einhvað.

En jæja rykið og skíturinn fer ekki sjálfviljugt út þannig að ég verð víst að halda áfram að þrífa og pakka. Verið blessuð og eigið góða helgi Cool


Shitturinn-Titturinn

Dísin kom austur klukkan 8 í gær þá var fínt að vera komin heim en það var alveg brjálæðislega kalt. Fór úr sólinni í Rvk í snjóinn fyrir austan. Ég er sko ekki að ljúga það snjóaði hérna í gær.

Þegar ég kom heim í gær tók Jói tengdapabbi á móti mér og var leiðinni haldið heim til þeirra skötuhjúa og beðið eftir Gumma þar. Tengdamamma gaf mér að borða enda var ég orðin svöng. En lilla greyið var einhvað svakalega róleg og svaf bara inni í búrinu sínu.  Á meðan beðið var eftir Gumma var bara drukkið kaffi og reynt að fræða mig um hina og þessa hluti en ég átti mjög erfitt með að læra um þessa ætt en þetta var flókið þannig að ég hef afsökun. LoL

Gummi kom svo að vanda og urðu fagnaðarlæti þar þegar Lilla sá hann. En uppúr 23:30 var haldið heim á leið. Byrjuðum reyndar á að fara í sjoppu og kaupa að borða þar sem Gummi minn var orðinn mjög svangur.

Í morgun fórum við Lilla á fætur klukkan 13:30 já það mætti halda að maður hefði ekkert sofið fyrir sunnan og ég var bara að hanga í tölvunni og svollis svo hringdi ég í Svövu hún sagði mér að hoppa yfir í kaffi og svo keyrði hún mig í búð. En hún var að fara upp á Egilstaði þannig að ég gat ekki stoppað lengi þar.

Ég prófaði að elda kjúkling en ég varð eiginlega fyrir miklum vonbrigðum með hann en borðaði nú samt en þegar ég var búin að borða þá lagðist ég upp í sófa og já ég verð að viðurkenna það ég sofnaði. Vaknaði þegar Gummi kom heim. Ætla að setja inn smá myndir líka læt fylgja eina með hér á forsíðunni sem tekin var i gær 18 Júní á Fagradalnum.

 

IMG_0582


Peningaspreðið!!!

Þá er það búið. Búin að fara í Reykjavík og eyða peningum. Og alveg búin að eyða nóg af þeim.

Woundering Við mæðgur byrjuðum á að fara í Elko þar keypti ég blek í prentarann minn hann var búinn að var bleklaus lengi ótúlegt hvað litlir auðveldir hlutir geta orðið erfiðir. Litlir hlutir eins og að vekja karlinn minn geta verið erfiðir ætlaði ekki að skrifa þetta en mundi það allt í einu að ég var víst búin að lofa honum að vekja hann klukkan 4 og var að hringja í hann klukkan 10 mínótur í 5.

Lilla hefur það mjög gott hérna og eins og er þá er hún að leika við Ástþór stóra frænda. LoL Og það finnst henni gaman. Ein smá fyndin saga af Lillu, Ég Mamma og Ástþór fórum smá rúnt í gær og vorum að keyra frá Innri Njarðvík og í bílframrúðunni er fluga. Lilla fylgist með henni alveg heillengi og við fylgdumst með Lillu og allt í einu fer hún upp út með tunguna og bara nammi gott svo er bara sleikt útum Grin Það var eiginlega eins og að hún væri að ákveða hvernig flugan skildi vera elduð LoL
En ætla nú að fara að gera einhvað af meira viti en að blogga Bæjó :)


Dísin komin úr sveitinni :)

Góða kvöldið Wink 

þá er maður komin heim úr sveitinni öðru nafni Þjórsárdalnum og þar var bara alveg æðislegt LoL Fyrir utan smá læti í unglingum en það lifir maður svo sem af eins og er Alla vega á meðan maður er bara 24 ára ennþá. En ég ætla að koma með smá sögu af helginni.

Föstudagur: Vaknaði klukkan 9 og byrjaði daginn á að fara í eina hressandi og góða sturtu. Svo var haldið af stað með Lillu í klippingu hún átti að mæta klukkan 10. Þegar ég var búin að skila af mér hundinum þá ákvað ég að fara að vekja Stínu og Eystein ( Hvað þau hafa ekki gott af því að sofa meira) Smile Stoppaði þar og drakk með þeim kaffi þangað til klukkan að verða 12 þá fór ég heim að gera mig til. Fara með dótið allt út í bíl og sollis vesen. Þegar draslið var komið í bílinn og allt var tilbúið þá fór ég að kaupa mér að borða og athuga svo með hundinn en hún var ekki tilbúin þannig að ég fór til Ástþórs og við förum að vesenast versla í matinn og sollis. Um 2 leitið var Lilla tilbúin og 

var haldið af stað í Rvk. Þurftum aðeins að snúast í Reykjavíkinni og svo var haldið austur fyrir fjall.

 Kvöldið var svo bara í kaffidrykkju og afslöppun.

Laugardagur: Var bara í leti, Göngu, éta, Hlægja og bara hafa gaman kíktum í Árnes og Ástþór fékk

keyra þangað voða stuð á drengnum Blush En hann keyrir mjög vel. Ps. Veðrið var alveg guðdómlegt.

Sunnudagur: Fór í að laga til og koma sér heim. Ástþór keyrði bara alla leiðina. Svo komum við Ástþór hingað heim og fórum að spila og svo að elda. Elduðum pulsupasta en svo lét drengurinn sig hverfa og fór á rúntinn með einhverju gaurum. Mamma litaði á mér hárið og svo fór ég í bað og nú sit ég hér og þykist vera að blogga einhvað af viti :)

ps. Vallý ég er að kenna kerlunni að vera með bloggsíðu. slóðin er http://olofk.blog.is/ 

 


Komin í mengunina.

Jæja þá er maður komin í Keflavíkina Smile Lenti í Reykjavíkinni um 16:35 og þá var leiðinni haldið suður til Keflavíkur en maður var nú ekki langt kominn þegar maður og byrjaði að ybba sig og segja- Mamma sérðu ekki hina bílana Blush Ein orðin frekar smeyk Wink. Það var byrjað á því að koma við heima hjá Sússu og ná í bílinn þannig að Mamma komist í vinnu um helgina Wink Ég er víst að fara upp í Þjórsárdal, og mig hlakkar mikið til að hitta vitleysingana þar LoL. Eitt er víst að þar verður hlegið LoL.

Lilla  varð aftur alveg trítilóð eftir róandi töfluna held hún hafi öfug áhrif á hana. Svo á að fara með hana í klippingu á morgun og það verður fjör hún verður svo sæt á eftir. En jæja ég ætla að fara með Mömmu að taka bensín blogga kannski meira í kvöld. See ya.


Allir að svara :)

1.ERTU SKÍRÐ/UR Í HÖFUÐIÐ Á EINHVERJUM ? 

Neibb, Mömmu dreymdi nafnið Ásdís og óskaði þess þá að ég væri stelpa og þaðan kemur nafnið Ásdís Ósk.


2. HVENÆR FÓRSTU SÍÐAST AÐ GRÁTA ?

Í gærkvöldi. Var að hugsa til Pabba og fjölskylduminnar fyrir sunnan.

 


3. FINNST ÞÉR ÞÚ SKRIFA VEL ?

Nei, skil varla sjálf skriftina mína :(


5. ÁTTU BÖRN ? EF JÁ HVE MÖRG ?

Já tvö. Gumma og Lillu :)Karlinn og hundurinn


6. EF ÞÚ VÆRIR EINHVER ANNAR EN ÞÚ ERT,VÆRIRÐU VINUR ÞINN ? 

Já, ætli ég myndi ekki reyna :)

7. NOTARÐU KALDHÆÐNI MIKIÐ ? 

Held ekki.


8. FÆRIRÐU Í TEYGJUSTÖKK ? 

Myndi alveg vilja prófa :)


9. HVAÐA MORGUNMATUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ?

Eins og er er það bara brauð eða coco puffs.


10. REIMARÐU FRÁ ÞEGAR ÞÚ FERÐ ÚR SKÓNUM ?

Nei.


11. TELURÐU ÞIG ANDLEGA STERKAN ?

Nei .


12. HVERNIG ÍS ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ? 

Er eiginlega alæta á ís í augnablikinu en segjum bara cappochinu ís.


13. HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ TEKUR EFTIR Í FARI FÓLKS ?

Svara næst þegar ég hitti nýja manneskju.


14. RAUÐUR EÐA BLEIKUR VARALITUR ?

Bleikur eða rauður eða veit ekki.


15. HVAÐ MISLÍKAR ÞÉR MEST VIÐ SJÁLFAN ÞIG ? 

Letin  og áhyggjurnar sem geta hrannast upp hjá mér :)


16. HVAÐA MANNESKJU SAKNAR ÞÚ MEST ? 

Pabba míns .


17. VILTU AÐ ALLIR SEM LESA ÞETTA SVARI ÞESSUM LISTA ?

Já, auðvitað.

18. HVAÐA LIT AF BUXUM OG SKÓM ERTU Í NÚNA ?

Svörtum buxum og svörtum inniskóm.

19. HVAÐ VAR ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ BORÐAÐIR ?

Ristað brauð.


20. Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA NÚNA ?

Fm 957

21. EF ÞÚ VÆRIR LITUR, HVAÐA LITUR VÆRIR ÞÚ ?

Bleikur


22. HVAÐA LYKT FINNST ÞÉR BEST ? 

Matarlykt og lyktin af hundinum mínum þegar hann er nýþveginn


23. VIÐ HVERN TALAÐIRÐU SÍÐAST Í SÍMA ? 

Mömmu.


24. LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ ÞÁ MANNESKJU SEM SENDI ÞÉR ÞESSAR SPURNINGAR? 

Stal þessum spurningum af annari síðu. En þekki þá manneskju lítið.

25. UPPÁHALDSÍÞRÓTT SEM ÞÚ HORFIR Á ? 

Horfi ekki á íþróttir


26. ÞINN HÁRALITUR ? 

músaskítsliturinn


27. AUGNLITUR ÞINN ?

Blár


28. NOTARÐU LINSUR ? 

Nei, bara gleraugu í augnablikinu


29. UPPÁHALDSMATUR ?

Kfc. Er svo mikið að hugsa til þess núna :)


30. HRYLLINGSMYND EÐA GÓÐUR ENDIR?

Góður endir þar sem ég horfi ekki á hryllingsmyndir


31. SÍÐASTA BÍÓMYND SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ ? 

Simson movie


32. KNÚS OG KOSSAR EÐA LENGRA Á FYRSTA DEITI ? 

Nei, látum knús og kossa duga á fyrsta deiti.


33. UPPÁHALDS EFTIRRÉTTUR ?

Ís og búðingur


34. HVER ER LÍKLEGASTUR TIL AÐ SVARA ÞESSU OG BIRTA ?

veit ekki alveg en vona að allir svari


35. HVER ER ÓLÍKLEGASTUR ? 

Veit ekki. vonandi enginn

36. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA ? 

Man ekki hvað hún heitir.


37. HVAÐA MYND ER Á MÚSAMOTTUNNI ÞINNI ? 

Hún er bara svört.


38. Á HVAÐ HORFÐIRÐU Í SJÓNVARPINU Í GÆR ?

One three hill.


39. ROLLING STONES EÐA BÍTLARNIR ?

Bítlarnir


40. HVAÐ ER ÞAÐ LENGSTA SEM ÞÚ HEFUR FARIÐ FRÁ ÍSLANDI ?

Úff var algjört flakkarabarn þegar ég var lítil.


41. HVERJIR ERU ÞÍNIR HELSTU EIGINLEIKAR ?

Reyni að brosa mikið. Og vera vinur vina minna. 


42. HVAR FÆDDISTU ?

Reykjavík.


43. SVÖR FRÁ HVERJUM ERTU SPENNTUST/SPENNTASTUR AÐ FÁ SJÁ ? Mömmu :)


Bara sætt !!!

Hann lifir sig svo inn í þetta bara mikið krútt.


Nýjar myndir :)

Wink Í albúmi sem heitir sumarmyndir 2008. Cool

Jæja þá er komið að bloggfærslu og ætla ég að byrja á því að biðjast fyrirgefningar á að hafa ekki bloggað fyrr það er bara búið að vera alveg nóg að gera hjá mér og ætla ég að reyna að segja frá heilli viku en tek bara einn dag í einu.

Föstudagur: Var að vinna til 6 og ég og Gummi fórum að keyra á móti Mömmu og co hittum þau á Egilstöðum. Fórum með þau á pizza 67 og fengum okkur pizzu svo var haldið áfram niðureftir. Þegar heim var komið var bara aðeins spjallað og svo var farið að sofa snemma allir orðnir þreyttir eftir þann daginn.

Laugardagur: Vöknuðum öll hress og kát ( líka Gummi en hann fór að vinna ) og fórum á einhvað flakk. Það var náttla nóg um að vera þar sem það var sjómannadagshelgi Wink Ég og Mamma fórum í system og keyptum okkur föt ég keypti mér leggings, kjól, pils og hlýrabol og var alveg geggjað ánægð með það allt saman. Svo fór Mamma og varð að kaupa sér líka einhvað svo hún keypti sér leggings og kjól Cool Annars man maður svo lítið frá þessu. Man að við fórum í sund hér á nesk og það var alveg æðislegt ég og Mamma syntum meira að segja nokkrar ferðir og fórum í gufu og á meðan skemmtu Konnig og Berglind sér mjög vel í rennibrautinni. Minnir að svo hafi bara verið farið heim og slakað á enda er það alltaf nauðsynlegt svona inn á milli.

Sunnudagur: Vöknuðum snemma um 8  leitið og fórum í siglingu klukkan 10 og það var alveg æðislegt. Þetta var alveg 2 tíma sigling og sem betur fer var Elín inn í búð að opna annars hefði verið opnað seint þann daginn. Mætti svo í vinnu og Berglind náttla með og hún var með mér alveg til klukkan 6 dugnaðarforkur alveg. Eftir vinnu var svo bara farið heim og spjallað og svona og líka horft á Næturvaktina  og það var sko æði Wink Mamma eldaði alveg súpergott spagettý þann daginn líka hehe sést á einni mynd af konna :)

Mánudagurinn: Var mikill ævintýradagur. Fór að vinna og var þar til klukkan 6. Veit eiginlega ekkert hvað fólkið gerði á meðan nema að fara í sund. En þegar ég var búin að vinna var eldað Grjónagrautur og þegar allt var að verða tilbúið þá varð náttla ein býfluga að fljúga inn og við náttla öll alveg dauðhrædd við þær og vorum öll komin út á stétt á meðan býflugan lét sem hún ætti heima hér. Ég var búin að standa með eitrunarbrúsann í hendinni en hafði mig ekki í að spreyja á hana en Mamma var sko ofurhuginn og spreyjaði á hana og hún dó strax ( og ég náttla með samviskubit yfrir að hún væri dáin).  Haha verð að segja ykkur frá því sem Konni sagði eftir að búið var að drepa býfluguna hann sagði - Amma þú hefðir átt að segja við býfluguna GAS GAS áður en að þú sprautaðir á hana LoL Haha. Svo var horft meira á næturvaktina lol lol.

 

Þriðjudagur:Fór að vinna klukkan 9 og þar sem það var frekar rólegt þá fékk ég leyfi til að fara heim klukkan 3 og við fórum því öll í sund á Eskifirði og það var æði Smile Nema að sundlaugin var allt of köld og litli heita potturinn líka og hinn potturinn var of heitur ( Greinilega erfitt að gera mér til hæfis) En eftir sundið fórum við krónuna og versluðum rosalega góðan mat þetta var svona síðasta máltíðin saman í bili allavega. Og svo var klárað að horfa á síðustu 3 þætti af næturvaktinni og þar með var serían búin Crying.

Miðvikudagur: Ég þurfti að vakna snemma því ég átti tíma hjá tannlækni mætti hjá honum um 8 leitið og svo í vinnu klukkan 9 og það var ekki mjög gaman hjá honum. Þurfti enn og aftur að deyfa 2 sinnum og aftur í góminn. Held að ég sé orðin ónæm fyrir deyfingunni. Mamma, Konni og Berglind komu að kveðja mig í búðinni og lögðu snemma af stað ( var samt soldið erfitt að kveðja). Eftir vinnu hjá mér var alveg ferlegar skrítið að vera allt í einu ein Gummi að vinna og bara ég og Lilla heima það var skrítið. Úff nenni þessu varla lengur.

Fimmtudagur: Vaknaði fór að vinna, kom svo heim, lagaði aðeins til og fór svo út að labba með Lillu kom aðeins við hjá Svövu á leiðinni heim og svo var bara farið að sofa.

Föstudagur. Fór að vinna, var til klukkan 6 kom heim og fór í fín föt. Ætluðum að fara í ferðalag en hættum við því tjaldið er einhvað leiðinlegt. Ætlum að fara á morgun að leita að nýju tjaldi. En við grilluðum kjöt og ostapylsur og það var mjög gott og nú sit ég hér og er að blogga og er sko komin með nóg af bloggi í bili en segi bara bæjóTounge


Er bara að láta vita að ég er á lífi :)

Er bara búin að vera með fullt hús af gestum Wink Mamma, Konni og Berglind komu keyrandi austur. Og það er sko búið að vera alveg hryllilega gaman hef skemmt mér alveg ljómandi vel. Konni hefur reytt af sér brandarana og ég man ekki eftir að hafa hlegið svona mikið yfir matmálstíma. Cool

En þetta verður bara stutt blogg núna þar sem ég á að vera mætt í vinnu eftir 20 mín. Blogga meira í kvöld see ya Smile


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband