Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Er kannski kominn tími á eins og eitt blogg :)

Hjá mér hefur voðalega lítið verið að gerast nema það að ég er að fara suður eftir 9 daga :) og hlakkar alveg geðveikt til. Það á að skíra litlu frænku mína þann 7 Apríl og ég fæ að halda á henni undir skírn og vera skírnarvottur Bara cool enda á ég og litla frænka eftir að verða alveg ROSALEGA  góðar vinkonur :)

Annars veit maður ekkert hvað maður á að blogga meira það gerist aldrei neitt í þessum bæ ég og Gummi höfum reyndar verið dugleg að fara út á rúntinn og í gær kíktum við smá rúnt og Gummi sagði eigum við ekki að bjóða garðari á rúntinn bara svona svo að það sé einhver skemmtilegur hér og ég bara TAKK hehe Það er gaman að þessu en ég nenni bara ekki að bloggar meira núna see ya


góðan daginn :)

Hehe ég er alltaf að skamma alla fyrir að vera ekki dugleg að blogga en svo er ég það ekki sjálf :)

En allavega hefur ekki verið mikið að gera hjá mér heldur en bara þetta venjulega sofa, skíta og éta og vinna :) Ég reyndar fór á smá djamm á Laugardagskvöldið og varð svo ógeðslega þunn að ég mun ábyggilega ekki detta í það aftur fyrr en eftir ár eða einhvað álíkaLoL

Mig langar svo að fara að hafa þetta svona spekingslegt spjall svona inn á milli því ég er alltaf að spá í öllu og eins að segja frá skemmtilegum sögum sem ég man eftir og er að lenda í enn þann dag í dag.

Það er til dæmis eitt sem ég er að spá í það er af hverju drekkur fólk???? Ég meina það drekkur verður óskýrt í kollinum og gerir einhvað sem það man ekkert eftir og sér líka eftir því sem það man. Pælið í hvað margir hafa haldið framhjá á djamminum og koma með þá afsökun að- Ég var svo full/ur og vissi ekkert hvað ég var að gera. BOMMM Eitt samband út um þúfur og fyrir hvað 5 tíma af sumbli??????? Eða hvað ???? Hvað er svona gott við áfengi???? Oft þegar ég dett í það þá hugsa ég alltaf ( Ég vona að ég verði ekki þunn á morgun) En allir vita að ég verð það FootinMouth Nú ætla ég að fara að hugsa þetta þannig ef ég fer út á djammið og drekk þá verð ég veik allan daginn eftir á er það sem ég vil????

Reyndar er til fólk sem kann að drekka eins og Gummi kærastinn minn og hann er alltaf að kenna mér ég skal koma með tvennt sem hann hefur sagt mér.

Sko ef þið eruð að drekka rauðvín eða annað álíkka hristið það aðeins til í munninum áður en þið kyngið það er gott og númer 2 DREKKA MIKIÐ VATN MEÐ

Hafið það gott og gangið hægt inn um gleðinnar dyr

 


Gleðifréttir :)

Litla frænka mín er komin í heiminn :) hún kom í gær og ætla ég sko að fara að kíkja á hana um páskana.

En annars kann ég ekki að blogga lengur veit ekkert hvað ég á að segja en ég skal reyna :)

Sko við erum að fara í skírn á Sunnudaginn hjá tvíburunum og ætlum líklegast upp í Egilstaði em helgina og vera þar bara alla helgina fara kannski í sund og svona :)

Annars var ég afskaplega dugleg í gær :) skúraði allt hérna hehe en heyrru ég nenni ekki að blogga meira skal reyna að vera dugleg við þetta en ætla að  setja inn mynd af nýjasta afkomenda í fjölskyldunni :)

maríana


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband