Bloggfærslur mánaðarins, desember 2006

Síðasta blogg ársins :)

Góða kvöldið!

Nú er langt síðan ég bloggaði síðast og helling búið að gerast síðan þá LoL

Ég er búin að fara suður og til danmerkur og svo aftur suður að halda upp á jólin og svo núna sit ég inn í stofu hjá tengdó  og blogga síðasta blogg ársins. Wizard

En nú ætla ég að segja ykkur aðeins af kaupmannahöfn, þann 14 desember var ég að vinna til 18:00 og fór beint eftir það upp á Egilstaði tengdamamma var búin að elda hana okkur mjög góðan mat og svo var haldið upp á Flugstöð og lent var í Rvk klukkan 22:00 og þá var haldið suður í Keflavík og kíkt á hana Stínu eða ég og Mamma fórum þangað Kissing Vorum komin heim um 00:00 þannig að flestir hefðu haldið að það væri farið í að sofa en Nei ekki ég og Gummi ég var svo spennt að ég held að ég hafi sofnað klukkan 03:00 og vaknað klukkan 04:00 þannig að ekki var mikið sofið þá nótt.

15 Desember: Hittum Óla og Svövu konu hans upp á flugvelli klukkan 05:00 og svo var haldið í gegnum fríhöfnina og svo var farið í loftið klukkan 07:00. Það var lent í Kaupmannahöfn um hádegi á dösnkum tíma og þar var gengið hratt í gegnum flugstöðina og haldið upp á hótelið svo var haldið í verslunarleiðangur í Fields. Við reyndar byrjuðum á því að borða saman og svo skiptum við liði og fórum að versla. En ekki höfðum við orku í mikinn verslunarleiðangur þannig að það var haldið snemma á hótelið en við komumst nú ekki klakklaust þaðan, Sko það var þannig að við fórum í lest og hurðirnar á henni lokast svo hratt þannig að hver manneskja var bara að hugsa um að koma sér inn í lestina svo var ég komin inn og leit út þá var hurðin lokuð og Gummi var fyrir utanLoL

Um kvöldið lagði ég mig svo smá stund og svo var haldið í tívólíið, Óli píndi mig og Gumma í eitt tæki og ég varð bara veik eftir það Blush Það snérist svo hratt. En það var samt margt skoðað og sollis þannig að þetta var allt í lagi Grin

16 Desember: Gummi fór á einhvern fund og ég svaf morgunmatinn af mér þannig að þegar Gummi kom þá var bara haldið af stað á Strikið og mér leið alveg afskaplega vel að komast í Hm og keypti flestar jólagjfirnar þar Tounge svo var sjóvið um kvöldið og þar var alveg rosalega gaman :)

17 Desember: Vaknaði um hádegi og fór að versla svo fórum við upp á flugvöll og þá var komið að heimleiðinni :)

En nú nenni ég ekki að blogga meira í bili segi meira frá þessu seinna og set inn myndir.

En gleðilegt nýtt ár og hafið það gott á nýju ári Kissing


Á þessum tíma eftir

Nákvæmlega eina viku þá verð ég að spóka mig á strikinu í kaupmannahöfn CoolÆtla að reyna að versla allar jólagjafir úti. Ji hvað mér hlakkar tilJoyful

Annars er mjög lítið að frétta af mér það er alltaf bara þetta sama vinna, sofa, og borða. Ekki beint spennandi líf en það er samt gaman að þessu. Ég og Gummi reynum alltaf að gera einhvað skemmtilegt um helgar eins og að fara á egilstaði og sollis Joyful

Ég á að mæta til læknis á miðvikudaginn og það verður gaman að vita hvað kemur úr því. Ég skrifa ábyggilega um það hvað verður þá.

Ég er búin að baka 2 sortir af kökum eða kornflextoppa og lakkrístoppa en það er enginn til að borða þá því ég fæ aldrei neina gesti Crying

En þar sem er mikið búið að vera að spyrja hvað mig langar í í jólagjöf þá ætla ég bara að setja smá jólagjafalista hér inn :)

Mig langar í:

Íslensku spádómsbókina og spilin, svo ætlar mamma að kaupa handa mér þarna kaffispádómadæmis þannig að ég fæ það pottþétt :) Svo langar mig í föt og skartgripi, geisladiska eða góða dvd mynd, og svo fyrir heimilið þá langar mig í svona dæmi þar sem maður setur epli eða einhvað í og úr kemur eplasafi veit ekkert hvað það heitir ;) En jæja nú ætla ég að hætta þessu röflu bless bless og gangið hægt inn um gleðinnar dyr


Jei talvan er komin :)

Loksins er talvan komin aftur hún var í viðgerð.

En þið eruð nú ekki búin að missa af miklu þó ég hafi ekki bloggað því það er akkúrat ekkert búið að vera að gera hjá mér :(

En á Föstudagskvöldið fórum við upp á Egilstaði og vorum þar yfir nótt, fórum í Bónus og sollis og svo á Laugardagskvöldið fórum við á jólahlaðborð í egilsbúð. Svo var ég að vinna á Sunnudeginum og slapp sem betur fer við þynnku Tounge

En svo í morgun átti ég að mæta til læknis en svaf yfir mig ég þoli ekki þegar það gerist.

En veit nú ekkert hvað ég á að segja meira en ég var að fatta að það eru bara sirka 10 dagar þangað til ég fer til köben á jólahlaðborð InLove


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband