Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Elsku Pabbi minn

M7PTACAPGO04YCAB5B73SCAI6NK0OCANM2G3GCASN0KNTCAZP82R2CAON2ZPWCA0KRPTVCA4N89HSCAUSCJ39CAZW98SRCATDX4RNCAQ42QJQCAYCYIDACANCVHM0CA8SJ0RNCA0M1E6PCA2DJ73HCANZRNUI



Hér kveiki ég á kerti fyrir þig. Ég mun ávallt sakna þín og þú munt ávallt vera í hjarta mínu. Ég elska þig svo endalaust mikið og vildi að ég fengi meiri tíma með þér en ég allavega veit að þú kvelst ekki lengur. Ég veit bara að þú munt ávallt fylgja mér og passa upp á mig. Og þakka ég þér fyrir síðustu mínúturnar með þér.

 Ég elska þig alltaf. Kveðja Ásdís


Góða kvöldið :)

Nú er ég ´búin að eiga góða helgi. Er í fríi og var að setja kjöt í pottinn Happy En ég ætla aðeins að segja ykkur frá helginni.

Föstudagur: Var að vinna frá 9 til 6 gerði samt lítið annað þann dag nema glápa á sjónvarpið og svona horfði á útsvar en var svo bara komin á temmilegum tíma upp í rúm.

Laugardagur: Vaknaði um 10 leitið og var bara einhvað að dúlla mér til svona 11 fór þá og dró Gumma minn á fætur, byrjuðum á að skutlast í apótekið og svo var stefna tekin á Egilstaði stoppuðum reyndar og Reyðarfirði og Gummi keypti jólagjöf þar og svo var haldið áfram til Egilstaða. Þar var hoppað í kaffi til tengdó og var stoppað þar alveg ágætlega lengi Skárum út í laufabrauð og steiktum og fórum svo í jólagjafa innkaup og erum langt komin með þau. Svo eftir kvöldmatarleitið var haldið niður eftir aftur vorum komin heim um 11 þá var farið í að ganga frá og svo var bara farið að sofa.

Sunnudagur: Vaknaði um 10 og Gummi rak mig þá í sturtu og sagði að við værum að fara á Breiðdalsvík að hitta Þóru, Palla, Benedikt árna og Oddný eddu. En það var byrjað á því að koma við í vinnunni hjá Gumma og svo þegar það var búið þá var farið í að hringja í þóru en þá sagðist hún vera á leiðinni til okkar Smile Þannig að við fórum bara smá rúnt og svo heim.

Svo komu Þóra og tvíburarnir og það varð að forða öllu brothættu frá þeim. Þau stoppuðu í smá stund og héldu svo áfram að kíkja í heimsóknir. Eftir að þau fóru ákváðum við Gummi að leggjast upp í rúm í smá stund og kúra en það gekk ekki betur en það að ég skreið framm úr klukkan 5 henti kjöti í pottinn og nú sit ég hér og blaðra í ykkur LoL En Gummi sefur enn.

Jæja, Takk fyrir að lesa þetta þið sem gerðuð það og endilega kvittið.

Ps. Það eru bara 4 dagar þangað til ég fer suður JIBBÝKissing

 

 


Djöfull er neðri hæðin

orðin flott. Hehe Gummi á sko alveg mikið hrós skilið hann er búinn að standa sig mjög vel Smile Hann er langt kominn með parketið og þetta kemur sko alveg geggjað vel út HappyNúna get ég farið að sofa niðri bara mikið rosalega hlakkar mig til Tounge

Jólin eru á næstu grösum og einungis 11 dagar þangað til ég fer suður Wink Ohh mig hlakkar svo til er samt bara búin að kaupa 2 jólagjafir en er búin að ákveða eina í viðbót eða handa Mömmu og Pabba Smile Mig er farið að hlakka svo til jólanna ég bara get ekki beðið er líka búin að vera geggjað dugleg í dag var að vinna til 6 og er bara rosalega orkumikil. Ætla samt ekki að leggjast upp í sófa því þá er voðinn vís. Reyni kannski að mála loftið í dag eða kvöld réttara sagt.

Ég er búin að vera alveg rosalega aum í skrokknum í dag hef legið einhvað illa og finnst ég öll vera í vöðvabólgu. En jæja ætla að fara að elda handa kallinum mínum Bæjó :)

ps. Jólahlaðborðið var mjög gott nema ég varð bara mikið veik Sick en maturinn var æði

002


15 Dagar jibbý

Jæja nú er maður farinn að telja niður og það eru 15 dagar þangað til ég fer suður og mig hlakkar svo til að fá að knúsa familinu. Kissing í dag fór ég að vinna klukkan 9 og var að vinna til klukkan 7 fór og keypti mér líka jólaföt í dag er sko að fara á jólahlaðborð á laugardaginn Með vinnunni það verður ábyggilega rosa fjör hehe . Er að vinna á Laugardaginn til klukkan 4 og svo þarf ég að vinna frá 5 til 6 á Sunnudaginn :) og svo er ég í fríi næstu helgi og svo er ég bara farin suður helgina þar á eftir Joyful En jæja núna bara nenni ég ekki að blogga meira see ya :)

 

 

 


Meira blogg meira blogg

Gott og blessað kvöldið Smile Jæja nú er helgarfríið mitt búið og þá tekur við önnur 2 vikna törn Angry Ohh hvað ég þoli þetta sko ekki. En annars er bara allt gott að frétta af mér er sko búin að vera að laga til í allan dag þá á ég sko við bara jólhreingerning ég er búin að henda alveg slatta miklu Geðveikt dugleg hehe. Er búin að þurrka af öllu og skúra allt saman ohh maður verður svo stoltur af því sem maður gerir :)

Lilla er bara búin aðvera góð voða hjálpleg eins og vanalega held að hún sé að reyna að segja mér að hætta í tölvunni kom aðeins að skoða og svo dró hún bara músina niður hehe

Meira blogg næst see ya all


1. Desember

Jæja þá er fyrsti í aðventu á morgun Smile Alveg kominn tími á að fara í að setja jólaljósin í gluggann. Er reyndar búin að ætla að gera það síðan síðustu helgi Halo Er bara alltaf svo þreytt þegar ég kem heim úr vinnunni.

En ég er búin að vera í fríi í dag og er sko búin að gera slatta sko W00t Aðalega að eyða peningum samt Blush Hehe en það er svona að vera ég búin að eyða sirka 30.000 + 15.000 sem ég skuldaði Mömmu og pabba. En í morgun vaknaði ég klukkan 9 en lagðist upp í sófa og vaknaði ekki fyrr en Svava hringdi í mig í morgun og bað mig að koma yfir í kaffi og það var sko klukkan 12 LoL Svo fór ég yfir til hennar og stoppaði þar í svona 2 tíma fór svo heim að vekja Gumma og við fórum að eyða peningum og svo komum við heim aftur en hann fór niður að vinna og ég í eldhúsið. Bakaði Lakkrístoppa og svo eldaði ég pulsupasta en náttla snillingurinn ég fattaði það þegar ég var eiginlega tilbúin með allt að ég gleymdi PASTANU svo að ég varð að henda því í pott og sjóða Shocking Ég er sko margbúin að segja Gumma að hann á ekki að leyfa mér að koma nálægt eldhúsinu nema til að laga til Whistling

Næstu helgar verða alveg vel bókaðar hjá mér sko næstu helgi þá er ég að vinna og að fara á jólahlaðborð og helgina þar á eftir fer ég líka á jólahlaðborð en verð ekki að vinna Woundering Og svo helgina þar á eftir þá er ég sko bara stungin af suður Cool Ætla sko að eyða jólunum með fallegu fjölskyldunni minni fyrir sunnan Tounge

En jæja ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að ljúga meira í ykkur ætla að fara að hengja upp jólaljós og þrífa hehe BÆJÓ InLoveKissing


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband