Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Hehe

Nú er ég búin að vera að skamma Geira fyrir að blogga ekki fyrir Maríönu og svo blogga ég EKKI sjálf hehe ég verð að ráða fram úr því.

Það er nú samt eiginlega aldrei neitt að gera hjá mér nema þetta sama gamla VINNA;VINNA OG VINNA hehe geri yfir leitt ekki mikið í frítíma mínu. En hér kemur smá blogg.

19 Apríl eða Sumardaginn fyrsta var ég og Gummi í fríi svo að við kíktum yfir á Eskifjörð að hitta hann Garðar vin okkar í nýja húsinu hans. Kíktum þar í kaffi og vorum þar í smá tíma. Svo kíktum við á Egilstaði í mat og kíktum svo á Seyðisfjörð þar var alveg rosalega gaman. Vorum þar alveg framm á nótt og fórum svo og vorum hjá Tengdó um nóttina þar sem Mamma var að koma um morguninn.

20 Apríl komu Mamma og Berglind. Ég og Gummi fórum aðeins að leita að ísskáp áður en að þær komu en svo var bara haldið af stað á Nesk þar sem ég þurfti að mæta í vinnu klukkan 1 en ég var bara að vinna til klukkan 6 og þá kom ég heim og þar var bara legið í leti.

21 Apríl var eiginlega bara legið í leti reyndar fórum við í sund en það var eiginlega það eina sem ég gerði nema ég fór út að borða með stelpunum úr vinnunni um kvöldið.

22 Apríl þá vorum við komin út um hádegi kíktum upp á Egilstaði og fengum okkur smá rúnt upp í Hallormsstað þar hitt Mamma einhverjar stelpur sem hún var að vinna með sem eru í húsmæðraskólanum og þær sýndu okkur eiginlega allt sem var bara cool og svo var haldið í að skoða trjásafnið í Hallormstað fengum okkur smá rölt þar svo fórum við í Kaffi til tengdó. Ákváðum að fara aðeins á eiðar og sýna mömmu þann stað og svo var bara haldið aftur til Tengdó í mat og svo var skilað Mömmu og Berglindi til baka. Held að Pabbi hafi verið mjög ánægður að fá þær aftur :)

En jæja blogga meira seinna


Páskadagur

Góðan daginn!
Nú er alveg heilmikið búið að vera að gera hjá mér. Í gær var skírn hjá henni maríönu litlu sætustu frænku minni hún var rosalega stillt og góð í kirkjunni. Og svo eftir skírnina var haldið heim til Geira og Aseneth og þar var þetta fína kaffi og kökur. Eftir það var farið heim og þar var Berglind knúsuð og kysst því hún átti afmæli í gær
Kissing  Til hamingju Berglind


En svo komu sorgarfréttir hún Amma mín Súsanna lést í gær og vil ég bara segja við hana ég mun alltaf elska þig og muna eftir þér Elsku Amma mín 
     Kissing Og ég veit að nú er hún á himninum að fylgjast með okkur. 
En nú skal ég bara láta þetta gott heita í bili stefnt er að því að fara í bíó í kvöld á Bean in holiday blogga bara meira seinna.

jæja komin suður.

Halló! Þá er maður loksins komin suður sem er sko bara fínt við Gummi lögðum af stað um klukkan 7 í gærkvöldi og vorum komin klukkan 4 um nóttina.

Í dag hefur svo verið alveg helling að gera ég vaknaði um 10 og fór að borða og leika við Lillu svo kom Geiri í heimsókn og svo bættust Nonni, Davíð og Thelma lind í hópinn. Krakkarnir komu með hjartasúkkulaði mola handa mér  Kissing  Takk fyrir.
En svo var leiðinni haldið upp á Sjúkrahús og hitta Pabba og svo fórum við til Geira og Aseneth og Maríönu. Ohh hún var svo sæt alveg yndisleg og hún var svo góð hjá mér Wink  Svo var farið í bónus og verslað ég og Gummi keyptum okkur páskaegg og sollis.
Svo þegar heim var komið kíktu Kalli og Kolla og börnin og það var fínt.  En nú ætla ég að fara að koma mér í bólið er að leka niður af þreytu Gasp  Góðanótt

Fyndið :)

Hæhæ þið fáu sem lesið bloggið mitt Kissing Má ég biðja ykkur um eitt?? Mig langar svo að biðja ykkur um að kvitta fyrir ykkur það er svo gaman að sjá hverjir nenna að lesa þetta. Annars gæti ég alveg eins talað við vegginn hérna hjá mérErrm En nóg um það.

Í gær kíktum við Gummi á Akureyri fórum í Rúmfatalagerinn og Hagkaup og svona versluðum okkur tölvuborð og svona núna vantar okkar bara tölvustól við sáum engan sem okkur fannst þægilegur Angry En það var bara hörkufjör fórum á Subway sem var sko bara gott hehe. EN svo fórum við að borða á Pizza 67 á Egilstöðum og á meðan við vorum að borða kom kona inn með kransaköku og mig langaði svo að segja hei ég á ekki afmæli fyrr en á þriðjudaginn W00t En svo þegar ég kom á Norðfjörð þá fór ég að hitta stelpurnar úr vinnunni sem var bara gaman fór reyndar ekki á ballið.

En eitt sem ég var að spá þegar ég fór einu sinni suður með flugi þá var ég orðin frekar svöng og eins og flestir vita þá er ekki boðið upp á neinn mat í flugvélinni nema kaffi,vatn, te eða svala og ég lenti í því að þiggja einn kaffibolla en þegar ég opna borðið þá blasir við mér Hangikjöt, uppstúf,baunir og kartöflur og það var bara erftitt að horfa á þetta ég sé enn þá eftir því að hafa ekki beðið um hníf og gaffal Grinþað hefði verið nokkuð fyndið hehe

Ég gerði alveg stórmerkilega uppgvötun í morgun, sko Gummi var að gera þarfir sínar og beint fyrir ofan klósettið þar er svona skítafílusprey en hann gat að sjálfsögðu ekki spreijað svo ég fer inn á eftir honum þannig að ég fattaði það að Djöfullinn bjó karlmenn til en til að hafa hemil á körlunum þá bjó Guð til konuna Devil 

Og eitt í viðbót í gær var viðtal við einhvern mann frá stöð 2 í sambandi við að þeir hækkuðu áskriftargjaldið um einhver 9 prósent eða einhvað og þeir segja að ástæðan fyrir því hafi verið að það sé orðið svo dýrt að kaupa sjónvarpefni og svoleiðis en ef þið spáið í því að þeir gætu hafað hækkað það bara til að hafa opna dagskrá 1,2  og 3 Apríl hehe þetta er bara fyndið Halo

Okey nú er ég komin í stuð en það er bara þetta eina í viðbót svo lofa ég að tala bara við vegginn eða einhvað. En Allavega það sem ég tók eftir í gær er það að það munar 4 krónum á bensínlítranum á sömu bensínstöðinni á Akureyri og Egilstöðum, Ég meina Halló þetta er sama bensínstöðin og sama bensínið hvernig geta þeir þetta????? og ég skal koma með verðið það er 111 krónur líterinn á Akureyri og 115 á Egilstöðum pælið í þessu.

En hafið það gott og ég sé mína fjölskyldu eftir aðeins 3 daga :)

Ps. Geiri minn villtu fara að blogga fyrir Maríönu Halo takk takk 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband