Ég man...

Eftir því þegar ég var lítil eða svona gloppum hér og þar. Það er til alveg hellingur af videoum heima hjá Mömmu frá því að ég var lítil. Mikið í útlöndum og svona. Ég man daginn óljóst þegar ég kom heim og Pabbi var kominn með videokameruna. Þessi videokamera átti eftir að marka stór spor í lífi mínu og ég elska þessi myndbönd. Eitt er tekið úti í Florida þegar ég fór með Mömmu, Pabba og vinafólki þeirra, og vá hvað það var gaman. Pabbi var alveg óður með videokameruna og var liggur við allt sem við gerðum tekið upp. Eitt myndband er þegar ég var í baði og ég söng eins og ég veit ekki hvað. Ég var sko ekki að syngja lög úr leikskólanum nei ég var að syngja um daginn og veginn. Bara bull sko. Þennan hæfileika hef ég sko ekki í dag. Wink Svo er á þessu sama myndbandi ég í sundi ásamt tveimur stelpum sem töluðu ensku. Ég spjallaði alveg helling við þær og fannst ég skilja allt sem þær sögðu enda var svar mitt við öllu Yes. Það var held ég eina orðið sem ég kunni fyrir utan að ég held Coffe og Breakfast. Mamma leiðréttu mig ef ég fer með einhverja vitleysu.

Videokamerunu var líka hægt að nota í meira hún var hægt að nota sem vopn. Ég var í brjáluðu skapi inn í einhverr verslunarmiðstöð man ekki hvað það var sem ég vildi fá en það var einhvað og pabbi var náttla með videokameruna og tók myndband af prinsessunni sinni í brjáluðu skapi. Man eftir því sem mamma sagði við mig þá og ég var sko ekki sátt við það. Hún sagði að ef ég myndi ekki hættu þessu þá myndi hún sýna Rögnu Ömmu myndbandið þá kom ábyggilega einhver svipur á mig. ég meina hver vill láta Ömmu sýna sjá sig óþekka. Veit nú samt ekki hvort þetta hafði þau áhrif að ég hætti frekjunni eða hvað. LoL Mamma kannski svarar því.

En það var meira sem tekið var upp til dæmis ein jólin þegar ég var að lesa á pakkana og mig minnir að ég las það þannig að þeir voru allir til mín. Man svo eftir einni jólagjöf sem ég fékk frá Kalla bróður það var videospóla einhvað með Línu Langsokk var búin að horfa á hana mjög oft inn í Hagkaup. Wink Eigum líka til á myndbandi þegar ég og Ástþór vorum að prufa traktorinn hans Pabba ég hef ábyggilega verið í kringum 9- 10 ára og Ástþór hefur verið 2-3 ára og þegar ég er á traktórnum þá er hann að leiðbeina mér. Krakkinn ekki ennþá farinn að tala en hann er samt að kenna stóru frænku að keyra. En svo breyttist dæmið við, og í sumar fór ég með Ástþór í æfingarakstur.  Wink

En jæja þarf að fara að læra. En hafið það gott og vonandi verður þetta skemmtileg lesning fyrir ykkur InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Já hann skildi aldrei þessa vél frá sérÞað mátti ekki sína ömmu Þið 3 voruð allar yes dömur þið náðuð mjög vel samanÞað var frábært þegar Ástþór var að kenna þér á traktorinnMamma þín

Ólöf Karlsdóttir, 2.11.2008 kl. 13:50

2 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Góða nótt Ásdís mín  Mamma þín

Ólöf Karlsdóttir, 2.11.2008 kl. 21:44

3 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Passaðu bara að Dóra dúlla festist  ekki undir stiganum

Ólöf Karlsdóttir, 2.11.2008 kl. 21:47

4 Smámynd: Ásdís Ósk Valsdóttir

haha það hefði kannski verið fínt. þá hefði hún geta varað mig við áður en ég datt. Já ég datt sko niður stigann áðan og ég er að drepast í rassinum  Vill einhver kyssa á bágtið?????

Ásdís Ósk Valsdóttir, 2.11.2008 kl. 22:28

5 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Já auðvitað kyssir  mamma á bágtið En það á ekki að renna sér niður stigan samt

Ólöf Karlsdóttir, 3.11.2008 kl. 09:18

6 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Hehe hvað varst þú að ná þér í svona stóran marblett ,en Gummi fékk hann líka marblett Hættið þið að renna ykkur svona í stiganumKnús mamma

Ólöf Karlsdóttir, 3.11.2008 kl. 22:50

7 identicon

Hæ hæ ég er loksins flutt! Er bara ekki búin að týna úr kössunum mínum....á soldið af þeim eftir. En allavega þá er þetta allt saman að koma...þarf bara núna að venja mig á það að búa í bænum!!!! hehehehehe :) Þarf að fara í Ikea á eftir.þ..keypti og stuttar gardínustangir inn í hergergin hjá krökkunum :/ Heyrumst og hlakka til að sjá þig í desember...vildi bara að Kalli og Kolla kæmu líka.

Svanhildur (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 16:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband