þessi er góður

Gamla fólkið á elliheimili úti á landi var orðið afar þrúgað og meðtekið af efnahagsbölsýnisíbyljunni í fjölmiðlunum.
Forstöðukonan hafði sverar áhyggjur af þessu.
Í morgun var leikfimi á heimilinu. Forstöðukonan bað sjúkraþjálfarann að vera nú heldur á léttu nótunum og fyrir alla muni ekki minnast á efnahagsmál eða þrengingar.
Þetta væri alveg að fara með gamla fólkið.
Sjúkraþjálfarinn sagði það ekki nema sjálfsagt.
Svona hóf hann tímann:
"Kæru vinir! Í dag byrjum við á mjög léttri æfingu. Við réttum hendur út frá hliðunum, beygjum olnbogana og bönkum flötum lófum létt á bringuna, síðan réttum við úr höndunum og kreppum snöggt hnefana og endurtökum allt aftur og aftur," og svo hrópaði hann:
"Koma svo! Banka - kreppa, banka - kreppa, banka - kreppa......!" 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Haha þessi þrusugóður Dísa mín ég er að reyna að drekka bjórdós nr 2 á þessu áriSko er ekki búin með dósina en er farin að sjá tvöfaltGóða nótt dúlla mín knúsí knús mamma þín elska þig mikið

Ólöf Karlsdóttir, 1.11.2008 kl. 23:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband