Okey Magga mín ég skal

Blogga Wink

Veit samt ekki alveg hvað ég á að blogga um. Ég fór í blóðprufuna og það varð að stinga 3 sinnum gekk einhvað erfiðlega að finna æðinaCrying En ég fæ ábyggilega að vita úr henni fljótlega. Annars er ég búin að vera að vinna mikið síðustu viku, vegna veðurs hafa vörurnar ekki verið að koma þannig að ég hef verið að vinna auka Var á fimmtudaginn frá 9 til 6 var svo á Föstudaginn frá 1 til 9 og svo í dag frá klukkan 10:30 til 13:30. Svo er ég að vinna á morgun frá klukkan 12 til 18. Sem verður bara fínt alltaf gaman að hafa nóg að gera.

En allavega erum við búin að koma jólavörunum fyrir sem er viss léttir Blush En þegar ég var búin að vinna í dag þá fór ég og lagðist upp í rúm vegna þess að Gummi var enn sofandi ( hann var að vinna í nótt) Ætlaði bara aðeins að kúra hjá ástinni minni en þetta smá kúr varð til þess að ég vaknaði ekki fyrr en um 18:30. Varð pínu fúl því dagurinn er búinn bara.

En jæja eigum við ekki að segja þetta gott í bili ætla að fara að fikta í síðunni setja inn nýjar myndir og sollis Wizard


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það er gott  að kúra smá ,það er bara mikið að gera á stóru heimili  .Hlakka til að fá ykkur í desember.Kveðja mamma og pabbi

Mamma gamla (IP-tala skráð) 18.11.2006 kl. 22:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband