Ég var beðin um að blogga!!!

Trúið þið því og ég sem hélt að enginn nennti að lesa bloggið mitt Wink Ég veit nú ekki alveg frá hverju ég á að segja. Mánudeginum eða? ég get reyndar alveg sagt frá honum þó það hafi ekki skeð neitt spennandi.

Ég vaknaði í morgun og var sko ekki að nenna að fara á fætur átti svo erfitt með að opna augun. En jæja ég varð að láta mig hafa það og fór af stað ( varð að labba þar sem Gummi var á bílnum). Var í vinnunni til klukkan 7 og fór þá heim að senda Gumma í eldhúsið að elda. Svo borðaði ég og fór svo að horfa á one three hill. Hringdi Svo í Svövu en hún var víst að vinna ætlaði að kíkja á hana. En ég dró bara Dæju með mér í Göngutúr ( DÆJA ER AÐ VINNA MEÐ MÉR). Á meðan ég var að labba heim hringdi kolla í mig og var að skamma mig fyrir að vera ekki búin að blogga í dag Devil Svo ég þorði ekki annað en að blogga. Kolla var að segja mér að Davíð minn var að fá gat á hausinn þurfti að sauma sko 5 spor í ennið á honum Knús Davíð minn. KissingEr að kyssa á báttið. Svo nú sit ég hér og er að blogga Wink Jæja Kolla nú er komið að þér. Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

jahérna Þetta var nú meiri dagurinn í gær. Davíð var hjá ömmu og afa og hljóp á spýtu og fékk stort gat á ennið (þurfti að sauma 5 spor) Hann var svo duglegur að hann fékk að fara á KFC í verðlaun. Fór í starfsmannaviðtal í dag og fæ ný börn í stuðning á næsta ári og bara að vinna til 3 (ekki í frístund). Vona að þið hafið það gott og hringi í ykkur um helgina ( verð dugleg að kíkja á síðuna líka) Jæja er að fara að vinna upp í flugstöð með Kalla að kantskera og hreinsa fyrir fyrsta slátt í næstu viku  kv Kolla 

Kolla (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 16:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband