góðan daginn :)

Hehe ég er alltaf að skamma alla fyrir að vera ekki dugleg að blogga en svo er ég það ekki sjálf :)

En allavega hefur ekki verið mikið að gera hjá mér heldur en bara þetta venjulega sofa, skíta og éta og vinna :) Ég reyndar fór á smá djamm á Laugardagskvöldið og varð svo ógeðslega þunn að ég mun ábyggilega ekki detta í það aftur fyrr en eftir ár eða einhvað álíkaLoL

Mig langar svo að fara að hafa þetta svona spekingslegt spjall svona inn á milli því ég er alltaf að spá í öllu og eins að segja frá skemmtilegum sögum sem ég man eftir og er að lenda í enn þann dag í dag.

Það er til dæmis eitt sem ég er að spá í það er af hverju drekkur fólk???? Ég meina það drekkur verður óskýrt í kollinum og gerir einhvað sem það man ekkert eftir og sér líka eftir því sem það man. Pælið í hvað margir hafa haldið framhjá á djamminum og koma með þá afsökun að- Ég var svo full/ur og vissi ekkert hvað ég var að gera. BOMMM Eitt samband út um þúfur og fyrir hvað 5 tíma af sumbli??????? Eða hvað ???? Hvað er svona gott við áfengi???? Oft þegar ég dett í það þá hugsa ég alltaf ( Ég vona að ég verði ekki þunn á morgun) En allir vita að ég verð það FootinMouth Nú ætla ég að fara að hugsa þetta þannig ef ég fer út á djammið og drekk þá verð ég veik allan daginn eftir á er það sem ég vil????

Reyndar er til fólk sem kann að drekka eins og Gummi kærastinn minn og hann er alltaf að kenna mér ég skal koma með tvennt sem hann hefur sagt mér.

Sko ef þið eruð að drekka rauðvín eða annað álíkka hristið það aðeins til í munninum áður en þið kyngið það er gott og númer 2 DREKKA MIKIÐ VATN MEÐ

Hafið það gott og gangið hægt inn um gleðinnar dyr

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hum já ég man eftir ég var veik í heila viku ,ég man það enþá .Þess vegna drekk ég svona lítið kansk 1 bjór, en ætla kanski að fá mér 1 bjór í kvöld en gleymi því bara það er gott .En hvernig er það er komin vetur er vor eða haust ,er alveg hætt að skilja þetta ,það er alltaf veriðað plata mann en jæja nú kveð ég  .Þessi ruglaða gamla kona

Ruglaða mamma (IP-tala skráð) 21.3.2007 kl. 12:07

2 identicon

haha ég er nú sammála þér... yfir afhverju við skulum alltaf vera að drekka svona... vitandi um að maður verður geðveikt þunnur morgunnin eftir...ég er svoooo sammála þér... svona er bara lífið... hver og einn ákveður hvort han drekkur!!!! eins sem ég ætla að drekka næstu mæabuði er KAFFI!!!!! maður verður ek þunn af því!hahaha !!!

hafið það gott biðjum að heilsa því við pál erum að fara á MORGUN!!!!!!!!!suður!!!!

magga audda ;Þ (IP-tala skráð) 21.3.2007 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband