Snjór, snjór og meiri snjór :)

Já eins og þið sjáið þá er ég að verða komin á kaf í snjó. Tek kannski nokkrar myndir á eftir. Þessi vika er búin að vera mjög erfið og ég hef ekki komið mér í að gera neitt annað en að vinna, sofa og læra enda er ég búin að skila frá mér öllum verkefnum og þá eru bara prófin eftir. Verð að viðurkenna að ég er pínu kvíðin þeim. Vona bara að pabbi yrði stoltur af mér Smile

Er að fara að elda mér pizzu á eftir, ( Gummi fær náttla líka ) en hann er sofandi núna þannig að það er spurning hvort að hann vakni ekki við matarlyktina, vona það allavega að hann sé eins og Lilla og fari framm úr þegar hún finnur matarlykt. Tounge Það á að kveikja á jólatrénu á eftir og mikið væri ég til í að fara en ég hef engan að fara með. Vil ekki klína mér upp á Garðar og Freydísi . Annars reikna ég með að taka því bara rólega í dag og kvöld. Ætla allavega ekki að taka upp meiri skólabækur í dag, er búin að fá nóg af þeim í bili.

Ekki fæ ég bónorð eins og Mamma. Devil Hún vinnur mig í öllu kerlan gamla. 

Mig kvíður fyrir aðfangadag en hlakkar samt til. Gummi fær kannski frí og við verðum ábyggilega upp á Egilstöðum. En það er svo erfitt að á aðfangadag síðan að Pabbi minn dó og mér finnst eins og ég eigi bara að verða leið þann dag. En málið er að ég hef alltaf verið mikið jólabarn og skammast mín í dag fyrir að hlakka til. Hvernig á maður að hugsa? Hvað er rökrétt hugsun. Ég veit allavega að pabbi vissi hvað mér þótti vænt um hann og hann vill ábyggilega að ég gleðjist á þessum degi. Woundering Elska þig elsku pabbi minn.

En jæja nóg í bili ætla að fara að brenna við pizzu LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Sem betur fer ertu með efri hæð líka ,sko þú getur stokið af pallinum niður í snjóskaflinn  hehe .Hvað er það pizza a la Ásdís núna fór Gummi að vinna 

Ég myndi vilja vera fyrir austan um jólin en ég er líka að berjast við  samviskubit

Ég verð að fara með kerti á aðfangadag á leiðið 

Ég kem austur þegar vel liggur á mér 

Knús á þig og ykkur elska ykkur meira en sólina 

Svo eruð þið að koma suður það verður gaman

Bæ bæ mamma tengdó amma

Ólöf Karlsdóttir, 29.11.2008 kl. 19:37

2 identicon

Nei nei ekki búin að hætta við...ég læt betur vita af þessu þegar Kiddi er mættur á landið :)

Svanhildur (IP-tala skráð) 29.11.2008 kl. 20:50

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 29.11.2008 kl. 22:58

4 Smámynd: Ásdís Ósk Valsdóttir

Haha Vallý góð  Kannski maður ætti bara að skella sér á Indverskuna  Svona til vonar og vara

Ásdís Ósk Valsdóttir, 30.11.2008 kl. 09:55

5 Smámynd: Guðrún Pálína Karlsdóttir

Hæ elsku frænka.Þetta gengur allt upp hjá þér elskan Kv

Guðrún Pálína Karlsdóttir, 5.12.2008 kl. 21:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband