Leiðindarpest.

Þá vitum við það að sjálfsstyrkurinn er ekki nóg til að fá ekki pest. Byrjaði í gær í vinnunni að vera með leiðindar hausverk en tengdi hann við vöðvabólgu. Kom svo heim og fór að verða slöpp en bjó mér til engiferte, fannst ég vera að lagast fór út að labba með Lillu í 10 mín en þegar ég kom til baka þá var ég svo slöpp að ég fór bara beint að sofa. Vaknaði svo í morgun með þann versta höfuðverk sem ég hef fengið og var bara drulluslöpp og tilkynnti mig því veika í vinnuni. Mér líður eins og ég sé bara aumingi. Af hverju þarf ég að ná í hverja einustu pest sem gengur? Á meðan aðrið verða veikir einu sinni til 2 á ári. Kannski gerir maður bara meira úr sínum veikindum ég veit ekki. En nóg um það.

Námið gengur vel og fékk ég 9 fyrir fyrsta uppeldisfræðiverkefnið og já ég er mjög stolt af sjálfri mér. Wink Svo dreif ég mig í gær að skila verkefnabókinni í uppeldisfræði en svo í dag gaf hún öllum frest þangað til á Mánudaginn. Og Dísin náttla búin að skila.

Lady vallí er víst mjög dugleg að heimsækja gömlu kerluna en það er víst alveg stórhættulegt að fá hana í heimsókn allavega skilst mér að hún girnist mjög hurðarhúna hjá fólki Tounge Eins gott að fara að festa húninn sinn vel. Ef hún skildi einhverntímann eiga leið austur á land Grin Annars veit ég ekkert hverju ég á að ljúga meira að ykkur.

Bjó til heimsins besta kvöldmat í gær. Fer oft á kaffihúsið og fæ mér crepes og ákvað að prófa að búa til sollis heima. Keypti bara svona fajitas pönnukökur, sauð hrísgrjón og steikti beikon. Svo blandaði ég saman hrísgrjónum, beikoninu, pepperoni og maísbaunir og lét inn í pönnukökuna og svo lét ég e finnson grænmetissósu inn í. Og held ég hafi fengið nokkuð gott hrós frá Gumma allavega sagði hann að þetta væri betra en á kaffihúsinu.

En jæja nenni ekki að blogga meira bæjó.

ps. Lady vallí eins gott að það er ekki hurðarhúnn á bloggsíðunni minni...LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Ég er búin að hlæja mig vitlausa Til hamingju með gott gengi í skólanum þú ert engill gaman að lesa bloggið þitt elskanÞú hefur það frá elsku pabba þínum að fá kvef hann gat alltaf náð sér í svoleiðisOg já láttu  Ladývallý heyra það hætta að reyna að stela þessum h------- hurðarhún hann er svo fjári ljóturEn þessi nýji sem kemur hann verður festur kirfilega á hurðina svo hún steli honum ekki líka hún má reyna þaðEn veistu Dísa mín ég elska Vallý hún er svo vitlaus eins og ég  kveðja Mamma gamla orkukerlan

Ólöf Karlsdóttir, 17.9.2008 kl. 00:15

2 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Elska ykkur dúllan mín knúskveðja mamma

Ólöf Karlsdóttir, 19.9.2008 kl. 00:01

3 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Þið sem kíkið hér skiljið eftir fingraför mamma hennar Dísu

Ólöf Karlsdóttir, 19.9.2008 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband