Dugnaðurinn í Dísu :)

Vá shitt hvað ég er dugleg Tounge Í gær þreif ég vaskinn inn á baði og í dag þreif ég klósettið hátt og lágt svo er ég búin að vera að setja í þvottavél og hengja út á snúru Smile Ég er bara að drepast úr dugnaði í dag og því er kannski best að reyna að halda áfram að vera svona dugleg. En nei þetta er ekki búið ég er líka búin að þurrka af borðinu bæði í eldhúsinu og stofunni. Vá hvernig er hægt að vera svona dugleg mér finnst ég eiga verðlaun skilið LoL Kannski fæ ég koss frá Gummanum mínum í kvöld, hann er sko byrjaður að vinna aftur Frown. En ég á sko viku eftir byrja á Mánudaginn að vinna.

Lilla greyið er búin að vera rosalega þreytt og illt í maganum eftir að við komum heim. Hún er sko búin að þjást og nú eru ég og Gummi bara búin að taka fyrir að hún fái mat hjá öðrum. Hún var með svo mikið harðlífi í gær og Gummi varð eiginlega að stinga hendinni inn í rassgatið á henni og draga kúkinn út og það sem hún gat drullað eftir það Smile Og nú er hún öll að koma til. Ég er að reyna að kenna henni að dansa það var ein stelpa í þjórsárdalnum með svona púðluhund og hún kunni sko að dansa þetta er víst í eðli púðlunnar. Vá, hvað ég elska þennan hund mikið. Hún horfir alltaf svo fallega á mann og má segja að hún sendi manni bros.

Það var nú svoldið fyndið sem ég gerði fyrir sunnan. Ég var að borða bláber og Lillu langaði svo í svo að ég skildi eitt eftir og lét í dallinn og lokaði svo og ég get sko sagt ykkur það að hún eyddi mörgum tímum í að ná því og það var bara fyndið að fylgjast með henni. Wink

Ég og Gummi leigðum mynd í gær á skjánum sem heitir Veðramót og hún er sko geggjað góð mæli sko alveg með henni hún er samt soldið sorgleg og var mér farið að svíða í augun að reyna að gráta ekki. Maður má nú ekki sýna karlinum hvað maður er mikil mús. En jæja kaffipásan er búin best að halda áfram set kannski eina mynd úr sumarfríinu með :)

 

IMG_0682

Þetta er ég og Lilla að ganga upp í Ásbyrgi ( ekki meðferðarásbyrgi samt :) Var orðin vel þreytt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jæja þú bara dugleg ætla að reyna að setja sófan saman á morgun og skúra og soleiðis ,og setja hreint á rúmið í kvöld og reyna að sofa betur .Og ég elska Lillu líka meira en allt ,þarf að ná mér í aðra Lillu sko.Flott frí hjá ykkur ég á nokkra daga eftir veit ekki hvað ég á að nota það í ferðast.Og svo þarf ég að fara í bæin að sækja nyju eldavélina ,sakna ykkar bæbæ

Mamma gaml (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband