Best að blogga bara :)

Hef víst ekkert þarfara að gera. Er að bíða á meðan Gummi klárar kaffibollann, erum sko að fara upp á Egilstaði í stúdentsveislu hún Heiða systir hans Gumma var að klára stúdentinn. Innilega til hamingju Heiða mín JoyfulVildi að ég væri svona dugleg að verða stúdent.

Veðrið hérna úti er alveg yndislegt og á að vera alla vikuna bara þá erum við að tala um 25 stiga hita ekki leiðinlegt það og ég akkúrat í fríhelgi meiri heppnin maður Cool 

Eurovison er í kvöld og nú er bara að leita eftir partíi til að fara í í kvöld. Þannig að ef einhver ykkar ætlar að vera með eurovison partý þá endilega bjóðið mér LoL Neinei segi bara svona. Það verður rosalega gaman hjá mér og Gumma í dag ég er sko búin að ákveða það Tounge Ég meina hver skemmtir sér ekki í 25 stiga hita hahaha aðeins að núa ykkur upp úr þessu þar sem flest allir sem lesa bloggið mitt eru fyrir sunnan í skýjunum Wink

Á ég að reyna að finna einhvað sniðugt að blogga um en hvað ( hugsi, hugsi, hugsi).

Gullkorn barnana minna. Vonandi að þeim sé sama þó ég seti einhvað inn en mér finnst alltaf svo gaman að heyra svona gullkorn og ætla að reyna að koma með nokkur sem ég man.

Berglind. Var einu sinni í mat hjá Sússu og þeim og það var spagettý í matinn og Sússa var að spyrja berglindi hvort hún vildi tómatsósu út á og þá heyrist í þeirri stuttu - Verður þetta þá gott?

Haha ætli mamma sé ekki góður kokkur??? hahaha En nei ég veit það af reynslu að sússa mín er góður kokkur.

Önnur af Berglindi, Vorum að leita af geisladisk að hlusta á í bílnum og Berglind var að leita af Barnalögum allt í einu tekur hún upp einn disk sem er Bandalög og svo heyrist í henni - Eru Barnalög sama og Bandalög??? LoL Æji þau eru alveg yndisleg þessi gull.

Davíð Freyr á eitt rosalega gott gullkorn frá honum. Var að passa og Davíð Freyr sofnaði í sófanum og fyrir ofan sófann var mynd þar sem eru úlfar sem þú þarft að finna. Ég ætlaði að fara að taka hannn upp og setja hann inn í rúm en þá rumskar hann og segir - Nei, ekki ég er að horfa á myndina. Greinilega svaka spekingur þegar hann er sofandi.

Jæja læt þetta gott heita í bili. Allir að koma með fleiri gullkorn Grin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

haha findin það er sko allt a kafi i snjo hja þer ,vertu bara ekkert að monta þig solin er her goða .a suðurnesjum kv mamma Stina Eysteinn og Konni sjaumst seinna bæ

mamma (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 19:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband