Nú er ég sko lúin og búin á því :(

Maður veit aldrei hvernig maður á að byrja að skrifa í þetta blogg á þetta að fara að vera eins og þegar fólk skrifar dagbók og byrjar þá svona Kæra dagbók. Hei prufum þetta það er alltaf gaman að prófa einhvað nýtt.

Kæra Bloggsíða!

Hjá mér gerist aldrei neitt skemmtilegt lifið heldur bara áfram að ganga sinn vanagang en  ég hef mig aldrei í að gera neitt ( ekki allavega ef það er ekki inn á heimilinu). Er búin að ætla að kíkja til Svövu í ábyggilega viku eða einhvað en NEI hvað gerir maður eftir vinnu Leggst upp í sófa og byrjar að mygla þar Sick Hvernig ætli maður færi af ef það væri ekkert sjónvarp til??? Hvað myndi maður eiginlega gera. Minnir að Ma og Pa hafi verið að segja mér að þegar þau voru lítil þá var aldrei sjónvarp á Fimmtudögum. Það hlýtur að hafa verið skrítið.

Nýji meirihlutinn í Reykjavík hefur ekki átt góða byrjun virðist vera sem er nú kannski skiljanlegt voru vel teknir fyrir í spaugstofunni en mér fannst 2 í henni alveg eftirminnilega fyndið það var þegar þau voru þarna á bakvið það er að segja Villi og co þegar ólafur fer einhvað að spyrja hvað eru þau að kalla hættið við og þá sagði einhver Neinei þau eru að kalla Kæst svið :) Og svo í alveg bláendann þegar Löggurnar eru þarna og eru hjá einhverjum valtara og þá lemur önnu löggan í valtarann og segir hvað er þetta valtari og þá segir hin Nei, Ekkert miðað við Ólaf hann er miklu valtari :)

En helgin hjá mér gekk alveg stóraáfallalaust fyrir sig og ég skal segja ykkur einhvað aðeins frá henni.

Föstudagur: Vaknaði og mætti í vinnuna og gerði bara það sama og alltaf í vinnunni sem er ekkert til að segja frá. En þegar ég var búin að vinna þá kom Gummi og sótti mig og við elduðum pissu eða svona keypta úr búð, ( Hvað hún var á tilboði ) og svo var hún bara étin upp til agna og þá var svo bara horft á sjónvarpið.

Laugardagurinn: Vaknaði um 10 leitið og fór í tölvuna og svo ákvað ég að vera dugleg að fara að skúra hérna heima og svo er ég alveg rennsveitt, í Gúmmíhönskum og með skúringarskaftið í höndunum þegar það er bankað. Og er ekki bara Freydís fyrir utan, Mikið varð ég nú glöð að fá smá félagsskap, Gummi er nú ekki mikill félagsskapur þegar hann er sofandi. En já svo vorum við Freydís bara einhvað að spjalla og skoða í myndir og svona í tölvunni, svo ákváðum við að leigja mynd á skjánum leigðum mynd sem heitir Becose I said so og það er alveg snilldar mynd.

En svo kom Garðar og sótti Freydísi og við Gummi kíktum út í búð.  Svo hringdi Garða og spurði hvort við vildum panta með honum Pizzu og við sögðum náttla bara jájá þó að við værum að fara á Þorrablót svo koma þau um 6 leitið og við pöntum pizzurnar og þá er sagt að það sé svona 20 til 25 mínútna bið en svo bíðum við og bíðum og eftir klukkutíma gefumst við upp og hringjum aftur og þá á pizzan að vera farin út og við reiknum með að hún fari þá að detta inn bara en hún kemur svona 30 mín seinna og þá vantar eina pizzu og gosið og hinar pizzurnar eru orðnar ísskaldar. Held ég hafi bara aldrei lent í þessu áður en nóg um það ég og Gummi urðum að fara en Garðar og Freydís urðu eftir hérna og biðu eftir hinni pizzunni. Við verðum bara að endurtaka þetta og þá mun ekkert liggja á Tounge

En Þorrablótið var mjög vel heppnað í alla staði og er ég mjög ánægð með að hafa prófað það.

Sunnudagurinn: Vaknaði lagaði aðeins til og fór svo að vinna var að vinna til 6 og svo er ég bara búin að hanga fyrir framan tövuna og sjónvarpið fór reyndar í sturtu líka en núna sit ég hér og geri ábyggilega lengsta blogg sem ég hef gert.

Jæja Kæra bloggsíða nú kveð ég þig. Kannski nenni ég að blogga í þig á morgun það er að segja ef einhver kvittar í þig og biður og meira blogg. Þið megið líka alveg biðja mig um að tjá mig um einhver málefni. Ég get alveg tjáð mig um það þó að ég hafi ekkert vit á því.Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá það var bara langur pistill að lesa núna ,og það var líka gaman að lesa hann.Og svo vil ég pizzu og hvítlauksbrauð að hætti Gumma.Og gott að þið skeltuð ykkur á þorrablót það er gaman.Svo skrifa bara meira um einhvað skemtilekt og gaman ,Bæbæ í bili .Love you all

mamma (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 01:23

2 identicon

Hæ Hæ Ásdís

Datt hér inn  hjá þér

kveðja.

Vallý (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 01:02

3 identicon

Er alltaf inni á síðunni þinni og gleymi að kvitta (SORRY). Það er allt á fullu hjá okkur fyrir ferminguna og biðin styttist. Gaman að lesa pistlana þína.

Fáum bílinn á morgun úr viðgerð (það komu vitlausir varahlutir að utan).    

           kv Kolla

Kolbrún Lind (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband