Blabla

Jæja það er nú kannski best að reyna að baskra einhvað við að blogga meira. Þó að það lesi þetta sko enginn :( En allavega helgin er nú víst búin Sick og þá tekur við 2 vikna törn í vinnunni, ohh ég þoli þetta sko ekki en ætla samt að láta mig hafa það fram yfir áramót.

Ég og Gummi erum búin að ákveða að vera fyrir sunnan um jólin þannig að það verður mjög gaman, er meira að segja búin að fá frí í vinnunni eða svona næstum því, - á bara eftir að spyrja Zögu um að skipta við mig Wink Er samt alveg nokkuð viss um að hún segir JÁ hehe.

Það er eiginlega alveg hellingur að gera hjá mér núna bara á næstunni, er að fara að vinna á morgun og verð til 7 og þá get ég farið að mála herbergið niðri Gummi er sko búinn að grunna ( sem betur fer því lyktin af því er alger vibbi ) en svo á Miðvikudaginn þá fæ ég að losna úr vinnunni klukkan 2 til að fara upp á Egilstaði og segja mig úr einum lífeyrirsjóði er alveg í 3 sko sem er allt of mikið Crying Svo ætla ég að reyna að hafa það gott ( reyna að fá tengdamömmu til að bjóða mér í mat :) Síðan er ég náttla að vinna um helgina en svo er ég í fríi helgina þar á eftir og ætla að reyna að fara upp á Egilstaði og kaupa jólagjafir ( er sko að fatta að það er allt eftir ) en svo helgina þar á eftir þá fer ég á jólahlaðborð með vinnunni og líka helgina þar á eftir þannig að það verður nóg að gera.

Ætla að reyna að fara suður 21 Des og vera til 26 Des þannig að mig hlakkar mikið til að hitta allt fólkið mittHalo En jæja er þetta ekki orðið gott í bili ég skal reyna að finna upp einhverjar vangaveltur fyrir næsta blogg þannig að ég segi bara pass á eftir efninu :) Þetta segir alltaf ein kona sem pantar hjá okkur :) hehe bæbæ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þð verður sko kúl þegar þú kemur suður ,við heimsækjum Stínu og Eystein auðvitað og Sússu og Kalla og Geira auðvitað og ekki gleima borða skötu saman það er gaman

Mamma og pa (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 23:00

2 identicon

Það á að vera gleyma á síðunni á undan.Man ekki hvað ég ætlaði ð segjahér það var einhvað svona gott

Mamma og Pabbi (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 23:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband