Hér er sko allt á kafi í snjó :)

Já, þessi snjór. En förum í smá pollyönnu leik og hugsum um hvað hann birtir vel hjá okkur. Litla Dísin ég er komin í nám, veit ekki alveg hvaða vitleysa þetta er hjá mér. En kannski maður eigi eftir að standa sig bara í þessu, vonum það allavega. Smile Ætlaði sko bara fyrst að taka Ísl 212 en ég fann bara ísl 603 og svo 203 og 212 á bakvið. Svo að ég skráði mig í það en ákvað svo að ég væri bara að gera vitleysu og skráði mig í Sál 103. ( Athugið ætlaði bara að taka eitt fag þessa önnina). En í morgun þá var ég skráð í bæði. Ég hringdi upp í skóla og þurfti þá bara að vera búin með ísl 203 til að ég mætti taka þennan áfanga, og hann er ég búin með þannig að ég lét hann bara vera inni og líka sálfræðin. Ojæja hefur maður nokkuð betra að gera við tímann?

Kreppan virðist vera farin að hafa áhrif á alla, hún er meira að segja komin í Samkaup, nú vinn ég frá 10- 18 í staðinn fyrir 09:00 til 18. En ég er ennþá til 7 á Fimmtudögum. Verð svo bara að vera duglegri að taka aukavinnu. En við Gummi björgumst alveg sko.

En jæja ætla að fara að athuga hvort ég eigi þessar skólabækur sem þarf að hafa. Og svo að brjóta saman þvott. Hafið það gott og njótið hvers dags því sami dagurinn kemur aldrei aftur.Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svandís Magnúsdóttir

Takk fyrir Ásdís að vilja vera bloggvinur,kveðja  frá Klúku  í Vogonum.

Svandís Magnúsdóttir, 12.1.2009 kl. 20:24

2 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Sko ég gamlan skal með glöðu koma á foreldrafundi hjá þér ,ef ég kemst vegna elli En sú gamla er að ganga saman ,ég ætti að léttast sko eftir öll þessi átök,Knús mamma og Vala

Ólöf Karlsdóttir, 12.1.2009 kl. 20:42

3 identicon

Hæ Ásdís mín. Langaði bara að segja hæ við þig hérna á blogginu. Ég vona svo innilega að þú hafir það rosalega gott og að þú njótir hvern dag sem best.

Hafðu það rosa gott í kvöld sem og alla aðra daga.

Með kveðju og knúsi...

Valgeir.

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 20:51

4 identicon

Hæ frænka, þú átt eftir að brjótast í gegnum þetta nám einsog elding! Þú getur allt sem þú vilt geta gert....eða eitthvað haha

Svanhildur (IP-tala skráð) 15.1.2009 kl. 22:22

5 Smámynd: Ásdís Ósk Valsdóttir

Dóra mín hvaða átak ?????????

Haha nei þetta gengur fínt. Er búin að hreyfa mig eins mikið og ég nenni en svo er ég búin að slaufa fram hjá öllu Nammi, gosi, sætabrauði og ís síðan ég byrjaði og það gengur vel :) Vona bara að ég muni sjá árangur erfiðis míns fljótt :)

Ásdís Ósk Valsdóttir, 15.1.2009 kl. 22:49

6 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Dísa mín vertu góð við mömmu Geiri er alltaf góður við mömmu sína Ég veit þú ert líka góð við við mig og elskar mig mikið Elska þig líka ég er búin að missa 3 kíló ,fór ekki rétt að því en .Knús á ykkur elskan elskum þigMamma og Vala

Ólöf Karlsdóttir, 16.1.2009 kl. 20:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband