Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008
27.5.2008 | 21:16
Ég er með tannpínu :(
Hver vill koma og rífa úr mér tönnina??? Einhver hlýtur nú að bjóða sig fram við það Hefur fólk ekki alltaf gaman að því að pína aðra?
Vitið þið um einhvern stað sem vantar fólk í vinnu? Er sko að mygla í vinnunni minni. Það er sko ein kona fullorðin og hún er farin að vera leiðinleg við mig. Hún er farin að fara inn í grænmetistkæli og leita uppi einhvað ónýtt þannig að hún geti sett út á mig. Í dag kom hún með 3 rauð vínber Æji, maður á ekki að láta aðra fara í taugarnar á sér og þessi kona er fín inn við beinið og vill ábyggilega bara vel en það er bara erfitt þegar þetta er farið að vera á hverjum degi .
Verðrið er búið að vera alveg yndislegt hérna og það er sko bara búið að vera fúlt að þurfa að hanga inni í vinnunni Hef samt passað mig á því að vera úti í kaffinu og held að ég sé komin með smá lit. Svo á veðrið víst að vera svona á morgun líka veit svo ekki með vikuna þar á eftir. Ég og Gummi erum búin að ákveða að fara í ferðalag núna 6 Júní vitum ekki hvert en bara í sólina. Á samt ábyggilega eftir að vera erfitt að hugsa til þess að ég gæti verið að fara út 7 Júní.
Veit samt ekki hvað ég á að bulla meira í ykkur. Fer að segja þetta gott í bili. En ég var að leika mér með myndavélina um daginn tók nokkrar myndir set eina inn með svona sumarmynd :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.5.2008 | 10:30
Best að blogga bara :)
Hef víst ekkert þarfara að gera. Er að bíða á meðan Gummi klárar kaffibollann, erum sko að fara upp á Egilstaði í stúdentsveislu hún Heiða systir hans Gumma var að klára stúdentinn. Innilega til hamingju Heiða mín Vildi að ég væri svona dugleg að verða stúdent.
Veðrið hérna úti er alveg yndislegt og á að vera alla vikuna bara þá erum við að tala um 25 stiga hita ekki leiðinlegt það og ég akkúrat í fríhelgi meiri heppnin maður
Eurovison er í kvöld og nú er bara að leita eftir partíi til að fara í í kvöld. Þannig að ef einhver ykkar ætlar að vera með eurovison partý þá endilega bjóðið mér Neinei segi bara svona. Það verður rosalega gaman hjá mér og Gumma í dag ég er sko búin að ákveða það Ég meina hver skemmtir sér ekki í 25 stiga hita hahaha aðeins að núa ykkur upp úr þessu þar sem flest allir sem lesa bloggið mitt eru fyrir sunnan í skýjunum
Á ég að reyna að finna einhvað sniðugt að blogga um en hvað ( hugsi, hugsi, hugsi).
Gullkorn barnana minna. Vonandi að þeim sé sama þó ég seti einhvað inn en mér finnst alltaf svo gaman að heyra svona gullkorn og ætla að reyna að koma með nokkur sem ég man.
Berglind. Var einu sinni í mat hjá Sússu og þeim og það var spagettý í matinn og Sússa var að spyrja berglindi hvort hún vildi tómatsósu út á og þá heyrist í þeirri stuttu - Verður þetta þá gott?
Haha ætli mamma sé ekki góður kokkur??? hahaha En nei ég veit það af reynslu að sússa mín er góður kokkur.
Önnur af Berglindi, Vorum að leita af geisladisk að hlusta á í bílnum og Berglind var að leita af Barnalögum allt í einu tekur hún upp einn disk sem er Bandalög og svo heyrist í henni - Eru Barnalög sama og Bandalög??? Æji þau eru alveg yndisleg þessi gull.
Davíð Freyr á eitt rosalega gott gullkorn frá honum. Var að passa og Davíð Freyr sofnaði í sófanum og fyrir ofan sófann var mynd þar sem eru úlfar sem þú þarft að finna. Ég ætlaði að fara að taka hannn upp og setja hann inn í rúm en þá rumskar hann og segir - Nei, ekki ég er að horfa á myndina. Greinilega svaka spekingur þegar hann er sofandi.
Jæja læt þetta gott heita í bili. Allir að koma með fleiri gullkorn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.5.2008 | 22:04
Friðrik Ómar og Regína Ósk :)
Innilega til hamingju með sigurinn. Þið stóðuð ykkur frábærlega Vá ég varð alveg hoppandi glöð þegar það var sagt að Ísland færi áfram. En það sem ég var búin að spá fór ekki alveg eins og það átti að fara ég spáði því að þessi lög færu áfram ekki í þessari röð samt.
Ísland, Svíþjóð, Úkraína, Czeuch Rebublic, Króatía, Búlgaría, Danmörk, Kýpur og Makedónía þetta eru þau sem ég hefði kosið en ég gat ekki valið lag númer 10.
En þau lög sem fóru áfram eru Úkraína, Króatía, Albania, Ísland, Georgía, Danmörk, Svíþjóð, Lettland, Tyrkland og Portúgal.
Annars fannst mér keppnin mjög vel heppnuð. Og segi bara enn og aftur ÁFRAM ÍSLAND.
Ég var að vinna í dag frá klukkan 9 til 7 og verð svo frá 9 til 7 á morgun líka Finnst sko ekki gaman að vera til 7. Ég dreif mig alveg þokkalega mikið heim úr vinnunni til að ná Íslenska laginu og ég rétt náði því. Sem betur fer.
Nú fer að styttast í að ég fari í Sumarfrí og mig hlakkar svo mikið til. Það er svo erfitt að bíða. Mig langar alveg geggjað mikið að fara út með Sússu og þeim en það verður að bíða betri tíma þar sem sumir hafa áhyggjur af mér í hinu stóra landi Þannig að það er eins gott að Sumarið hjá mér verði gott. Er búin að ákveða hvenær ég kem suður og það fær enginn að vita af því nema sá sem sækir mig á flugvölinn í Reykjavík
Ég fór til Tannlæknis í gær og þar fékk hann sko að pína mig. Fyrst var ég svo stressuð fyrir deyfingunni en þegar hún var búin þá var ég farin að anda léttar en Nei deyfingin dugði ekki svo að hann þurfti að deyfa aftur og í þetta sinn inn í gómnum og það var sko ekki GOTT Langaði að biðja um verðlaun eftir þetta en það fékk ég náttla ekki ég fékk bara að borga og það var sko ekkert smá. En hvað gerir maður ekki fyrir heilbrigðar tennur Nú á Tannlæknirinn minn bara eitt tækifæri eftir til að pína mig allavega næstu 6 mánuði .
Bensínið ætlar ekkert að hætta að hækka held ég. Maður keyrir fram hjá í hádeginu og þá er það í einni tölu og svo keyrir maður aftur fram hjá eftir vinnu og þá hefur bensínið alltaf hækkað um einhverjar krónur. Kannski að það sé rétt hjá Kalla bróðir mínum þetta eru klukkur ekki tafla sem sýnir hvað bensínlíterinn kostar. Ég meina fyrst er klukkan 15 47 og næst þegar maður keyrir fram hjá þá er það komið upp í 16 22 eða einhvað álíka Þoli ekki að eyða peningum.
Ég veit ekki hvað ég á að röfla meira í ykkur þannig að ég kveð í bili.
ps. Kolla mín hvernig gekk vinnuviðtalið????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.5.2008 | 22:53
Ég var beðin um að blogga!!!
Trúið þið því og ég sem hélt að enginn nennti að lesa bloggið mitt Ég veit nú ekki alveg frá hverju ég á að segja. Mánudeginum eða? ég get reyndar alveg sagt frá honum þó það hafi ekki skeð neitt spennandi.
Ég vaknaði í morgun og var sko ekki að nenna að fara á fætur átti svo erfitt með að opna augun. En jæja ég varð að láta mig hafa það og fór af stað ( varð að labba þar sem Gummi var á bílnum). Var í vinnunni til klukkan 7 og fór þá heim að senda Gumma í eldhúsið að elda. Svo borðaði ég og fór svo að horfa á one three hill. Hringdi Svo í Svövu en hún var víst að vinna ætlaði að kíkja á hana. En ég dró bara Dæju með mér í Göngutúr ( DÆJA ER AÐ VINNA MEÐ MÉR). Á meðan ég var að labba heim hringdi kolla í mig og var að skamma mig fyrir að vera ekki búin að blogga í dag Svo ég þorði ekki annað en að blogga. Kolla var að segja mér að Davíð minn var að fá gat á hausinn þurfti að sauma sko 5 spor í ennið á honum Knús Davíð minn. Er að kyssa á báttið. Svo nú sit ég hér og er að blogga Jæja Kolla nú er komið að þér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.5.2008 | 20:45
Er kominn tími á blogg???
Ha, hvað segið þið er kominn tími á blogg? Ha ég heyri ekki. Okey hér kemur smá blogg.
Ég fór inn í 21 helgi ársins með fílusvip því ég er ennþá lasin. Mikið hrikalega er ég orðin þreytt á þessu. Gummi minn er búinn að vera á næturvöktum alla helgina þannig að ég og Lilla erum bara búnar að vera 2 í kotinu. En ég skal svona segja ykkur í stuttu máli frá helginni.
Föstudagur: Vaknaði og fór að vinna, fór til tannlæknis og það var óvenju ódýrt kostaði bara 5700 og það fyrsta sem Gummi sagði þegar ég sagði honum frá þessu þá sagði hann- Hvað var tannlæknirinn ekki við Já hann er ágætur hann Gummi minn. En það voru bara 2 tennur skemmdar og fæ ég tíma á Miðvikudaginn í að láta gera við 1 tönnina og mig hlakkar sko ekki til. En þegar ég kom heim úr vinnu á Föstudaginn þá var ég svo þreytt og slöpp einhvað að ég var bara komin upp í rúm um 10.
Laugardagurinn rann upp bjartur og fagur utandyra en ekkert sérstaklega bjartu innandyra á mínu heimili. Ég var sko bara drulluslöpp og alveg hrilliega ánægð að vera í fríi. Fór sko ekkert út nema til að fara í ápótekið. Annars horfði ég á 3 bíómyndir þann daginn. Var sko búin að ákveða að taka því rólega og byrjaði á að horfa á myndina i now prenounce you chuck and larry og hún var sko bara fyndin. Þegar hún var búin horfði ég á mynd sem heitir the perfect man og hún var bara svona venjuleg stelpumynd og já mér fannst hún góð en svo síðast en ekki síst þá horfði ég á mynd sem var á stöð eitt og heitir Captein Corelli´s Mandolin og hún var líka rosalega góð. En svo fór ég bara niður að sofa.
Sunnudagurinn: Var nú aðeins skárri, þó ég væri að vinna þá vaknaði ég um 9 hélt vöku fyrir Gumma til 10 náði þá að svæfa hann fór þá í sturtu og svo bara upp að fá mér að borða og sollis. Svo var ég að vinna frá 12 til 18 og það var bara frekar rólegur dagur. Svo kom ég heim og ég og Gummi elduðum Franskar og Gordon Blue og það var svo gott. En svo fór Gummi að vinna og ég gekk frá eftir matinn og nú sit ég hér og blogga.
Vikan verður vonandi góð. Er að fara út að borða með Gumma og vinnufélögum hans á Þriðjudaginn og svo á Fimmtudaginn er náttla Evrovision undankeppnin og hana ætla ég sko að horfa á. Svo á Laugardaginn er stefna tekin á Egilstaði að fara í stúdentaveislu hjá Heiðu systir Gumma og svo er náttla aðal evrovision keppnin og ég ætla sko að horfa á hana en ég ætla að enda þetta blogg með þessum frábæru orðum Áfram Ísland...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.5.2008 | 19:04
Jæja þá er maður komin með pestina..
Fyrir sunnan var rosalega gaman og það var alveg yndislegt að fá að hitta fjölskylduna sína aftur. Ég fékk líka knús frá öllum og Gummi fékk meira að segja knús frá Davíð og Nonna.
Var eiginlega búin að segja frá helginni í hinu blogginu og er búin að laga það. Fékk að hitta Maríönu mína aftur og hún var orðin svo stór og farin að hlaupa um allt.
Þegar ég kom heim tók við veikindi. Var aðeins farin að slappast á leiðinni til baka en var svo bara fárveik á Þriðjudaginn ældi og ældi en ég er öll að koma til núna. Myndi bara vanta einhvað til að laga á mér hálsinn.
Annars hef ég ekkert að blogga um í bili. Ætla að panta mér pizzu þar sem ég hef ekkert getað gert ískápurinn er tómur og það er ekkert til að éta hérna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.5.2008 | 23:37
Jæja, þá er maður komin suður.
Þessi vika hefur verið afspyrnulengi að líða ábyggilega bara vegna spennings en núna er ég komin.
Vaknaði klukkan 6 í morgun til að sækja Gumma. Það var smá snjókomma og þoka á skarðinu en
ég hafði það yfir og er alveg endalaust stolt af sjálfri mér.
Þegar við komum þá byrjðum við á því að koma við í Gamla húsinu og hittum þar Mömmu þar var
byrjað á því að pissa og svo var fenginn s´sér einn kaffibolli en þar sem liðið var orðið mjög spennt
að sjá nýju íbúðina þá var hellt kaffibollanum fljótt upp í sig og svo var haldið til Keflavíkur.
Þegar í nýju íbúðina hennar mömmu var komið þar var þreytt lið sem samanstóð af fólki úr allt
úr drasli
Nei bara djók, þetta var bara Kalli, Kolla, Davíð og Jón stefán þau voru að þrífa á fullu.
Þegar búið var að skoða íbúðina hátt og lágt þá var ákveðið að fara og fá sér pantaða pizzu
í boði Kalla og Kollu. En áður en þangað var haldið þá var aðeins kíkt á Geira, Aseneth og Maríönu.
Og vá hvað Maríana er orðin stór og hún vildi sko alveg strax koma til mín var bara hissa á því.
Hjá Geira og Aseneth fengum við okkur einn kaffibolla og ábót og þar var margt spjallað En ég var mest að dást að litlu sætu Maríönu minni. Um 7 leitið var svo farið að reka á eftir okkur að koma
í
pizzu. Þegar til Kalla og Kollu var komið var pizzan á undan okkur en vá hvað það var gott að fá að
borða. Svo var setið og spjallað um allt milli himins og jarðar og fékk ég að vita svoldið um kynninguna sem ég fór á.
Fór á pottakynningu og þar var svona matarsóda trick, þar voru teknir 3 pottar einn nýr sem hún
var
að kynna og svo 2 gamlir og það var sett jafn mikið vatn og matarsóda í þá báða.
En svo vorum við látin smakka á öllum 3. Það var best úr nýja pottinum.
En það sem var verið að segja mér þá er það ekkert skrítið ef að matarsódi þrífur upp gamla skítinn úr pottunum.
Þá er nú ekkert skrítið þó þetta hafi verið best úr nýja pottinum.
En jæja nú er Gummi farinn að gera grín að mér og segja að ég sé orðin eins og Össur Skarphéðinsson
með bloggið þannig að ég kveð í bili. Set svo inn myndir eftir helgi :)
Bloggar | Breytt 13.5.2008 kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.5.2008 | 23:34
2 Dagar :)
Vá hvað ég á erfitt með að bíða og mig hlakkar svo til að fá að hitta og knúsa fjölskylduna mína. Mamma fær vonandi lyklana af nýju íbúðinni á Fimmtudaginn en átti að fá í dag. Það besta við nýju íbúðina er að þar er Baðkar og vá hvað ég ætla að fara í bað þar. Mamma segist ætla að draga mig og Gumma í bláa lónið á Sunnudaginn og það verður vonandi gott veður.
Það á að banna mig inn í eldhús alveg sama hvað ég er að gera. Sko, snillingurinn ég fór að elda kjúkling og var einhvað að bisast við að ná forminu út úr ofninum og rak hendina ( í stóra og klunnalega ofnahanskanum) í járnið og svo tek ég hendina út og hanskinn logar. Fyrstu viðbrögð mín voru náttla að blása og það slokknaði en mér var sagt að ég ætti ekki að gera það Man það næst.
Annars er bara búið að vera vinna hjá mér og það er samt búið að vera fínt. Góðir og skemmtilegir dagar við höfum líka geta hlegið mikið í vinnunni. Ég geri nú samt ekki mikið eftir vinnu annað en að hugsa um heimilið hanga í tölvunni og horfa á tv. Og eins og er núna þá er ég að telja niður þangað til ég kemst suður vá hvað börnin mín eru ábyggilega orðin stór og Davíð ætlar sko að fá að lesa fyrir mig. Þorsteinn Ingi og Thelma Lind eru búin að vera alveg rosalega dugleg að hjálpa Mömmu að pakka og svona sem er náttla bara fínt. Það er náttla erfitt verk fyrir höndum.
Elsku pabbi minn hefur verið mér mjög ofarlega í huga síðustu daga og ég finn lyktina af honum þannig að ég veit að hann er hér hjá mér. Ætli hann sé ekki að lesa bloggið mitt. Þess vegna sé ég svona dugleg að blogga. En ég sakna hans svo sárt. Langar svo að sjá hann, tala við hann og vera bara með honum. Reyndar tala ég við hann á hverjum degi hvort sem það er upphátt eða í hljóði og það er bara gott og hann fær að vita af öllu sem ég geri. Vá, pabbi minn ég sakna þín svo sárt, en samt finnst mér svo erfitt að hugsa um að fara til Kef og sitja í sætinu sem þú sast alltaf í og sjá öskubakkann þinn og allt það. Vonandi verður það ekki alltaf svona erfitt. Ég veit að þú ert hjá okkur öllum stundum.
Jæja þá er ég búin að segja ykkur frá því helsta sem á daga mína hefur drifið. Ætla að fara að koma mér í bólið Góða nótt og takk fyrir Kolla og co fyrir að kvitta :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.5.2008 | 10:59
9 Dagar til stefnu :)
Geggjað hvað mig hlakkar mikið til núna hehe. En ég var að fatta að það er mjög lítið eftir af vinnu þangað til ég fer í sumarfrí. Sko það er lokað núna 1 Maí en ég vinn á morgun er svo í fríi á Laugardaginn en vinn frá Sunnudegi til Fimmtudags og svo er ég komin í frí til Þriðjudags Af því að ég ætla að koma suður og taka dótið mitt svo að Mamma greyið þurfi ekki að burðast með það líka . En þar sem ég fer í frí 10 Júní 27 daga og einungis 3 Sunnudaga með þessum sem er að koma núna :) Enda hlakkar mig alveg endalaust mikið til.
Við Gummi erum ekki búin að plana neitt stórkostlegt í dag. Ætla að reyna að nota daginn og þrífa aðeins hérna ekki veitir af, og svo ætla ég að elda Læri og bjóða Freydísi og Garðari í mat og börnunm þeirra ( sem við Gummi teljum okkur eiga pínu í ) Pál helga og Magnús Orra þeir eru sko flottir strákar. Annars sit ég bara við tölvuna núna og er að reyna að blogga einhvað er búin að setja í eina þvottavél og uppvöskunarvélin er komin í gang. Ég er sko algjör súperkona og get allt.
Í gær keypti ég bein handa Lillu og hún var svo hryllilega æst og ætlaði að taka tilhlaup og hoppa upp í sófa en einhvað misheppnaðist þetta hjá henni greyinu og hún náði ekki og hoppaði á sófann ekki upp í hann og ég kvikyndið skellihló svona þegar ég var búin að vera viss um að hún væri ekki slösuð.
Hef spurt sjálfa mig að því hvert þjóðfélagið er að fara... Sko í fyrsta lagi eru allir vörubílstjórar í uppreisn og eru að loka vegum um hvippinn og hvappinn og hafa komið upp svaka slagsmál frá því. Í öðru lagi er allt að fara til fjandans í heilbrigðiskerfinu og verðbólgan hefur ekki verið mæld svona há í herrans tíð. Og hvað gera þessir ráðamenn á meðan götur Reykjavíkur eru stopp og svaka slagsmál í gangi þar, heilbrigðiskerfið í molum, Ja þeir leigja sér bara einkaþotur og ferðast um hvippinn og hvappinn vegna þess að þeir vilja ekki vera ókurteisir að þiggja ekki boð annara ráðamanna. Ætli hinir fínu kallarnir myndu virkilega verða svo reiðir??? Maður spyr sig. Geta þeir ekki bara sagt við komum þegar Ísland er orðið gott aftur og verið hér og reynt að semja við Vörubílstjóra og heilbrigðisstarfsmenn. Æji ég veit það ekki kannski hefur maður bara ekkert vit á þessu.
En jæja ætla að fara að stinga ryksugunni í samband og setja á mig þrífihanskana heyrumst í næsta bloggi...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eldri færslur
- Desember 2010
- Október 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nota bene
www.mbl.is
Aðal fréttavefurinn
www.barnaland.is
Hér er aðal fjörið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar