Bloggfærslur mánaðarins, október 2006
30.10.2006 | 09:49
Kominn tími á blogg :)
Góðan daginn eða kvöldið eða einhvað bara Nú er ég vöknuð vaknaði klukkan 9 á mánudegi finnst ég mjög vel sofin hehe En jæja ég ætla að segja ykkur aðeins frá helginni ég var að vinna á Föstudaginn til klukkan 7 svo fór ég heim og var svo þreytt að ég lá bara upp í sófa og glápti á tv opnaði mér einn bjór bara svona til að halda mér vakandi þangað til Gummi kæmi Gummi var að vinna alveg til 10 eða einhvað en já svo kom Gummi heim og við vorum bara að horfa á tv og svo fór ég að sofa :)
Á laugardaginn vaknaði ég ekki fyrr en klukkan 11 eða einhvað og við Gummi ákváðum að skella okkur upp á Egilsstaði vorum þar alveg til 9 það var mjög fínt ég keypti mér garn og ætlaði að prjóna trefil bara svona til að æfa mig en þetta líkist sko alls ekki trefli því hann er svo götóttur hugsa að mér sé bara ekki ætlað að prjóna Jæja nóg um það við vorum hjá tengdó í kvöldmat en svo fórum við á Reyðarfjörð og kíktum á Möggu og Garðar þar beið mín ísskalt og gott hvítvín umm nammi namm og þar var líka hlegið mjög mikið Svo var haldið heim um 2 um nóttina:)
Sunnudagur: þá vöknuðum við ekki fyrr en klukkan 12 og ákváðum að fara ekki neitt láum bara hér í leti. Ég reyndar var alveg afskaplega dugleg að þrífa og svona og svo var eldaður hryggur ummmmmmmmmmmmmm það var svo gott svo höfðum við brúnaðar kartöflur og villisósu. Geðveikt gott. En jæja nú held ég að þetta sé nóg í bili bið að heilsa öllum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.10.2006 | 19:56
Konráð 12 ára
Til hamingju Konni með daginn
Góðan daginn það er nú ekki búið að vera neitt skemmtilegt að gerast hjá mér bara þetta sama og alltaf var veik í gær ekki gaman. En svo hef ég bara verið að vinna og vinna var að vinna á Sunnudaginn það var ágætt lítið að gera. Annars á Laugardaginn fór ég og Gummi upp á Egilstaði og hittum Ömmu hans hún er sko algert æði hún var að sýna mér bók sem heitir How to paint animals on stone ætla sko að fara að gera þetta svo kíktum við á Möggu og Garðar og svo var bara haldið heim :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.10.2006 | 10:24
Miðvikudagurinn 18 október
Góðan daginn ég ætla að byrja þetta blogg á því að Þorsteinn Ingi frændi minn á afmæli í dag og ætla ég að óska honum til hamingju með það
En annars er ekkert að gerast hjá mér annað en það að það er allt orðið HVÍTT hérna fékk verulegt sjokk þegar ég vaknaði í morgun Annars er bara þetta same old same old hjá mér í gangi.
Pabbi hans Gumma átti afmæli í gær og óska ég honum líka til hamingju með daginn
En annars veit ég ekkert hvað ég á að bulla hér kannski að segja allt sem ég er að gera á daginn.
Ég sópaði allt hér í morgun og ætla svo að breyta aðeins í stofunni þegar ég nenni :) set myndir inn þegar það er búið BÆJ'O
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.10.2006 | 12:26
Helgin búin
Jæja, ætli það sé ekki kominn tími á smá blogg. Berglind er farin ekkert smá tómlegt hér án hennar en jæja ég ætla að segja aðeins frá helginni.
Föstudagurinn 13.
Komst í gegnum hann án þess að slasa mig eða neitt en allavega ég og Gummi sóttum Berglindi upp á Egilstaði um klukkan 11 og það var geðveikt gaman að hitta hana aftur. Svo kom Berglind með lopapeysuna mína sem var búið að taka 2 ÁR að gera geðveikt flott, TAKK MAMMA. Já, svo keyrðum við aftur niðureftir og ég fór í vinnu og Gummi líka. Berglind vildi ekki vera með Gumma þannig að hún var með mér í vinnunni og það var bara fínt( hún fékk að vera á kassanum og allt með Svövu) Og svo var alveg rosalega gott að hafa hana hún sagði mér bara hvað þyrfti að setja niður og ég fór og gáði hvað var til uppá. Góð samvinna. En eftir vinnu vorum búnar klukkan 6 fórum við bara heim og horfðum á sjónvarpið mjög kósí kvöld og berglind var mjög fljót að sofna
Laugardagurinn 14.
Vöknuðum um 9 leitið og horfðum á skrípó ákváðum að fara ekki neitt vegna veðurs fórum bara smá rúnt um Neskaupsstað og fórum svo heim og elduðum kjötsúpu. Berglind var að mála alveg á fullu og teikna og svona og svo leifðum við henni að leigja sér mynd, Hún valdið litli kjúllinn og svo var bara kósíkvöld aftur fyrir framan sjónvarpið horft á spaugstofuna og sollis og spilað rummikub.
Sunnudagurinn 15.
Vöknuðum seint eða um 11 leitið og var bara glápt á sjónvarpið til klukkan 1 þá var haldið á Reyðarfjörð í krónuna og keypt smá mat þar á meðal í Pulsupasta. þar var líka leitað að handklæðum en þau voru ekki til svo var bara farið heim og átt kósíkvöld :)
Mánudagurinn 16.
Þá var vaknað alveg eldsnemma og keyrt Berglindi í flug Ég sakna hennar svo mikið. Svo þegar ég og Gummi komum heim þá fórum við bara að gera okkur klár fyrir vinnu og svo er bara að bíða eftir næstu helgi
ps. Var að setja inn myndir frá helginni allir að skoða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2006 | 11:52
Þriðjudagurinn 10 oktober
Good morning ladies and gentleman Hvernig hafið þið það? Ég hef það allavega bara fínt :) Fór á djammið á Laugardaginn með gellunum úr vinnunni og það var bara alveg geggjað gaman :) Set inn myndir frá því bráðum En allavega þá er mjög lítið búið að gerast hjá mér síðustu daga bara vinna og vinna og knúsast við kallinn minn En á Sunnudaginn þá mætti ég í vinnu frekar þunn var ælandi og ælandi en fékk mér alveg snilldar töflur sem heita samarin var orðin góð í maganum eftir 5 mín geðveikt cool
En jæja nú veit ég eiginlega ekki hvað ég á að segja meira annað en þetta ( SKILABOÐ TIL KONNA OG ÞORSTEINS) HVAÐ VILJIÐ ÞIÐ Í AFMÆLISGJÖF?????????????????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.10.2006 | 20:04
Eldri konur, tölvur og
Farsímar eiga enga samleið. Hehe fékk að kynnast því í gær. Var að reyna að segja Mömmu hvernig hún ætti að skrá sig inn á símann, svo sagði ég henni að hún ætti að skrifa inn númerið sitt og hún gerði það svo fékk hún sms með leyninúmeri og hún átti að skrifa það á skjáinn svo fékk hún sms og skildi ekkert hvar hún átti að skrifa það. HALLÓ hún átti auðvitað að skrifa það á tölvuna en ekki símann hehe svo var svo fyndið að heyra í henni hún var bara ha á ég að skrifa það á tölvuna ehehe.
Jæja annars var dagurinn fínn fór í klippingu í morgun er búin að setja myndir inn á tölvuna af mér með nýju klippinguna allir að skoða. Gummi bakaði pizzu í dag umm hún var góð en jæja núna ætla ég að hætta þessu röfli heyrumst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.10.2006 | 20:12
4 Október
Ojj Ég er að horfa á ljósið inni í stofu og það er sko allt fullt af flugum
En jæja nóg um það Það var fínt í vinnunni í dag, komu vörur og því var mikið að gera. Ég og ein önnur þarna erum orðnar rosa góðar vinkonur hún ætlar að plokka mig og lita. Annars erum við gellurnar í vinnunni að fara út að borða saman Það verður sko gaman.
Var að panta mér tíma í klippingu og litun í dag fæ tíma á Föstudaginn. JIBBÝ. Og ég tók nýja símann minn í notkun í dag svo mig vantar alveg nokkur númer, Þannig að þið sem ég hringi ekki í þá biðst ég fyrirgefningar. Hehe Já en nóg blaður í bili blogga meira seinna.
PS ég var alveg ógeðslega dugleg í gær var að bíða eftir þvottavélinni og tók allt og skúraði + þreif klósettið hehe en áður en ég hætti að blaðra þá verð ég að segja ykkur frá einu ýkt fyndnu sem ég lenti í í gær. Eins og áður sagði var ég mjög að setja í þvottavél og svo fattaði ég að ég þyrfti að þvo vinnubolinn minn svo ég fer og finn fleiri rauð föt og fer með inn í þvottarhús, En þegar ég kem inn í þvottarhús þá sé ég að það er einhvað skrítið í gangi með þvottavélina svo Gummi kemur inn og hjálpar mér og ýtir aðeins við þvottinum sem er upp á þvottavélinni, svo fer Gummi fram og ég læt í þvottavél og fer svo og nudda Gumma( hann er búinn að vera svo slæmur í bakinu greyið) Svo leggst hann bara upp í rúm og róar sig niður. Svo þegar ég er búina að taka úr þvottavélinni þá sé ég að vinnubolurinn minn er ekki í vélinni svo ég fer og leita og leita og fatta svo að hann hefur dottið bakvið þvottavélina þegar hann ýtti við þvottinum. Svo ég fer inn í herbergi til hans og segi Elsku Gummi minn ég veit að þú ert að ná að slaka alveg geðveikt vel á og sollis en viltu koma og hjálpa mér að ná bolnum, svo hann kemur og nær bolnum, svo ég segi við hann jæja farðu nú aftur upp í rúm og slakaðu á svo hann segir já ég geri það og gekk út og læsti þvottarhússhurðinni.
HEHEH Ekki mikil hætta á að ég trufli hann þegar ég er læst inn í þvottarhúsi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.10.2006 | 19:19
Jæja þá verður maður víst að blogga :)
Jæja það er víst kominn tími á blogg. Langt síðan ég bloggaði síðast, annars er ekki mikið búið að gera hjá mér en ég er búin að kaupa mér nýjan síma nokia 6060 er bara að bíða á meðan hann hleður sig Það er svoldið erfitt.
En annars var lítið að gera í dag reyndar tók ég eina hillu fyrir í dag í vinnunni og dró allt fram ýkt flott.
Um helgina gerði ég margt og mikið, Á Laugardaginn fórum ég og Gummi á Egilstaði, kíktum í Bónus og fórum út að borða Gummi bauð mér. Svo á Sunnudaginn fórum ég, Gummi, Magga, Garðar og Páll helgi á Kárahnjúka og skoða það sem á að fara í kaf. Annars voru þarna líka Fult af öðru fólki svo sem Tengdó og fullt af öðrum. Sáum Ómar á örkinni sinni og allt. Svo um kvöldið fórum við á Undir borðið og fengum okkur að borða. En jæja nú ætla ég að hætta að röfla og setja inn myndir. Ætla svo að setja inn eina hér bara til að prófa :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eldri færslur
- Desember 2010
- Október 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nota bene
www.mbl.is
Aðal fréttavefurinn
www.barnaland.is
Hér er aðal fjörið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar