2.2.2009 | 22:43
Eftir helgina blogg :)
Jæja þá er þessi helgi búin og ný vika tekin við. Helgin var rosalega góð hjá mér :)
Á Föstudagsmorgun hringdi Berglind í mig og lét mig vita það að hún væri að koma þann daginn. En þar sem allir voru að vinna og því bras að sækja hana en hún var alveg ákveðin að koma þannig að hún kom bara með rútunni niðureftir. Ég sótti hana bara í Olís um hálf 7. Þá fórum við frænkur að elda og Lilla var alveg rosalega glöð að fá hana. Elduðum fiskinagga og franskar Svo um kvöldið vorum við bara í Leti hérna heima. Horfðum á sjónvarpið og svona. Hún sagði að ég væri alveg eins og Mamma alltaf í tölvunni Haha.
Á Laugardaginn vorum við eiginlega bara í leti líka. Nema við bökuðum pizzu og það voru allir alveg tilbúnir að hjálpa til við að baka pizzu en fólkið mitt var alveg rosalega Bizzy þegar kom að því að þrífa eftir Pizzubaksturinn. En Berglind endaði þó á því að hjálpa mér smá. Svo horfðum við á Spaugstofuna og Eurovison. Svo ákváðum við að leigja okkur mynd sem heitir Chestnut og hún er sko alveg rosalega góð. Við hlógum og grétum öll mikið. En svo fljótt varð mannskapurinn orðinn þreyttur. Og þá var farið í rúmið.
Á Sunnudaginn vildi Berglind endilega baka pönnukökur og hún fékk það og svo voru þær borðaðar og svo var haldið á Egilstaði. Komum við í Krónunni og keyptum þar einhvað smá nart bara. Svo fórum við á Egilstaði að skoða Saumavélar. Komum svo við í kaffi heima hjá Tengdó og hún ákvað að fara með okkur að skoða saumavélarnar. Byrjuðum reyndar á að koma Berglindi í flug og svo héldum við aftur í Kaupfélagið. Þar hittum við tengdamömmu og við fengum ekki íslenskar leiðbeiningar með saumavélinni sem var þar þannig að við ákváðum að bíða með þetta því Tengdamamma ákvað að fara daginn eftir og fá meiri upplýsingar. En svo héldum við bara niðureftir og borðuðum og vorum bara í svona slökun. En svo var ég orðin þreytt og fór niður. En hef verið orðin eitthvað leiðinlega veik því mér fannst ég þurfa að g**** og k*** En gerði sem betur fer hvorugt. Var samt komin niður með fötuna og allt saman. Og mér var svo kalt. Lá undir sæng í flíspeysu og ullarsokkum. En hafði tekið eina Samarin og var frekar hress í morgun en bara með smá höfuðverk.
Í dag leyfði ég sjálfri mér að sofa til 09:30 eða eitthvað er fór svo að vinna. Elín pantaði saumavélina og hún kemur á Miðvikudaginn líklegast Og mig hlakkar geggjað mikið til. En svo þegar ég var búin að vinna þá var ég bara að hanga hérna í tölvunni og borða og svona. Baðaði líka Lillu mína og hún er svo hrein og fín núna :) En jæja fer að segja þetta gott í bili set inn nokkrar myndir líka af Berglindi kokk :)
Og svo smá svona auka. Þetta er svo fallegt lag :)
Eldri færslur
- Desember 2010
- Október 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nota bene
www.mbl.is
Aðal fréttavefurinn
www.barnaland.is
Hér er aðal fjörið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Berglind dugleg að baka pönnsur ,þarf að leyfa henni að gera það hér hjá mér
Og á að fara að sauma föt eða falda gardínur hehe
En þetta lag er alveg gull gull fallegt elska það:-)
Ólöf Karlsdóttir, 3.2.2009 kl. 18:54
Flott litla frænka mín :) Hún er myndarleg í eldhúsinu...annað en ég hehe
Svanhildur Eysteinsdóttir, 4.2.2009 kl. 08:08
Hæ elsku Ásdís mín. Mikið er gaman að sjá færsluna frá þér. Þú ert jákvæð sem aldrei fyrr. Og myndarskapurinn í þér. Hann er nú engum líkur.
Hafðu það rosalega gott Ásdís mín og gangi þér rosa vel í öllu því sem þú tekur þér fyrir hendur. Þú ert að gera rosa góða hluti.
Með bestu kveðju.
Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 23:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.