18.1.2009 | 16:14
Mér er svo kalt.
Vill einhver koma og hlýja mér
Annars er helgin búin að vera rosalega góð hjá mér. Gummi vaknaði um klukkan 7 eða einhvað á Laugardaginn og ég vaknaði um 9. Vorum svo bara að hangsa hér heima, ég gerði verkefni fyrir sálfræðina. Gerði verkefni um karl sem heitir Rousseau. Það er eitt alveg rosalega undarlegt með hann, hann eignaðist 5 börn en fannst hann ekki vera góður pabbi þannig að hann gaf öll börnin sín á munaðarleysingjahæli. En hann sá svo eftir því. En svo var hann að gefa út fræðirit um hans sýn á það hvernig á að ala upp börn. Þannig að hann var að segja öðru fólki hvernig á að ala börnin upp en gat ekki alið sín eigin börn upp.
En um 11 leitið ákváðum við að fara aðeins upp á Egilstaði og það var vel misskilin ferð. Við stoppuðum reyndar aðeins í Byko á Reyðarfirði þar verslaði Gummi einhvað smá en svo var haldið áleiðis til Egilstaða.
Um leið og við komum til Egilstaða var svengdin farin að segja til sín svo ákveðið var að stoppa aðeins í söluskála KHB. Þar fengum við alveg rosalega góðan mat. En þar kom fyrsti misskilningurinn upp. Við vorum nýbúin að kyngja síðasta bitanum þegar ég sé stelpu sem ég var að vinna með og ég svona heilsaði henni með HAUSNUM, en á sama tíma var verið að kalla upp næsta númer á matnum og Gummi hélt að ég væri að gefa konunni bendingu um að koma með hann á okkar borð.
Þegar við vorum orðin södd og ánægð þá var kíkt á Heiðu systir Gumma og þar fengum við kaffi og með því. Vorum þar í smá stund en ákváðum að kíkja á tengdó. Þegar við keyrðum þar að sáum við bílinn þeirra keyra í burtu en héldum að þetta væri bara Pabbi hans svo að við kíktum inn en þar komum við að tómum kofanum. Við ákváðum því að kíkja bara í Kaupfélagið og ég komst í FÖTIN en keypti samt ekki neitt. Þegar við vorum búin að versla hringdi Mamma hans Gumma og var að láta vita að þau væru komin heim þá fóru þau á mótmælafundinn og ég sagði - hva var hann svona stuttur. Þá sagði Gummi já hann var bara stuttur hjá þeim. Svo ég varð að stríða Gumma og sagði hei ekki láta mig fá martröð. Svo sagði ég við Gumma í fúlustu alvöru sko -Mamma var ennþá í rúminu en þá sagði hann - Ekki þú láta mig fá martröð og ég er ennþá að hlæja að þessu.
En svo kíktum við á tengdó og þar fengum við pönnukökur svo að ég svindlaði smá en ég borðaði bara 2 . Tengdamamma fór að skoða í bókahillurnar og þar fékk ég fullt af bókum að lesa meira að segja bókina um Önnu á Hesteyri. En ég fékk þær að láni með því skilyrði að láta skólabækurnar ganga fyrir . En svo ákváðum við að koma okkur heim. Kíktum reyndar aðeins á Garðar, Freydísi og Pálínu Hrönn og horfðum á spaugstofuna þar en svo var haldið heim að horfa á Söngvakeppnina. Svo horfði ég líka á Dantes peak og hún var náttla rosalega góð.
Í dag er bara búið að vera í leti. Ég reyndar er búin að þvo þvott og lesa aðeins í skólabókunum. En nú þarf ég að fara að hætta að blogga og fara í búðina. Er sko að prófa ofninn frá Kalla og Kollu núna á eftir. Ætlum að gera kjúkling. EN nóg er þetta í bili.
Hafið það gott dúllurnar mínar
Eldri færslur
- Desember 2010
- Október 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nota bene
www.mbl.is
Aðal fréttavefurinn
www.barnaland.is
Hér er aðal fjörið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ elsku Ásdís mín.Það er nó að gera á st heimili.Dugleg ert þú að vera búinn að þvo þvottinn,þar einsog annastaðar á heimilinu er ég stopp.Jæja nó væl um mig haha.Gangi þér sem allra best elsku frænka.Veit að skólin hjá þér mun ganga vel hjá þér.Vertu viss
Blíðlegt birtu knús
Besta frænka haha
Guðrún Pálína Karlsdóttir, 18.1.2009 kl. 16:28
Hæ elsku Ásdís mín. Þú ert rosalega dugleg Ásdís mín. Þú stendur þig svo vel. Ég er einmitt að þvo þessa stundina. Ég þarf að þvo svona 3 þvottavélar fram á kvöld. Það verður bara ágætt. En þú stendur þig frábærlega vel í öllu því sem þú ert að gera. Það mættu margir taka þig sér til fyrirmyndar. Gangi þér áfram vel elsku vinkona og eigðu góðan dag og frábært kvöld.
Með bestu kveðju.
Valgeir.
Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 16:48
Lángar þig aldrei að flitja suður.Kemur það aldrei í þína hugsun,bara forvitin þegar ég flutti norður þegar krakkarnir voru litlir hafði ég alltaf heimþrá.Bara við báðar eru fæddar og uppaldar hér.Ein forvitin
Blíðlegt birtu knús til ykkar
Elsku frænka mín
I love you!
Guðrún Pálína Karlsdóttir, 19.1.2009 kl. 23:29
Jújú það kemur oft svona yfir mann að mann langi suður. En mér líður bara svo rosalega vel hérna og er umkringd svo góðu fólki. Það er líka alltaf svo mikið stress fyrir sunnan :) Er alveg laus við allt svoleiðis hérna :)
Ásdís Ósk Valsdóttir, 20.1.2009 kl. 09:23
Láttu Gumma ylja þér.Það er eins að koma inn á þessa síðu og hjá Dóru maður verð
svangur og feitur að koma hér inn
Ætla í smá blogg pásu og dúllast á facebook læra þar aðeins meira
en kem og kíki hér inn af og til bæbæ mamsa og vala
Ólöf Karlsdóttir, 20.1.2009 kl. 19:00
Hæ hæ frænka...takk fyrir kveðjuna í dag :) Bið að heilsa ykkur dúfunum
Svanhildur (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 22:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.