14.7.2008 | 21:10
Dísa klaufi :)
1 Dagurinn í vinnunni byrjar sko ekki vel. Byrjaði á því að gera pöntun og kemst að því á morgun hvað ég klúðraði í henni. En svo fór ég yfir mjólkurkælinn og var búin að missa niður eina jógúrtdollu fyrir klukkan 9, en ég náði bara í pappír og gat þurrkað upp en svo svona 10 mín yfir 9 þá náði ég að brjóta aðra dollu og það var svona jógúrt drykkur þannig að ég varð að setja á mig skúringahanskana og ná í skúringardótið. Svo var allt með kyrrum kjörum fram að hádegi. :)
Hádegið byrjar þannig að ég fer og sest niður og bíð á meðan ketilinn hitar vatnið mitt í bollasúpuna. Og það sem var á borðinu var segulstál og ég náði að klemma skinni á fingrinum á mér á það og það var VONT. Vildi helst ekki láta neinn sjá hvað ég gerði þangað til ég sýndi Gunnhildi og hún er sko bjargvætturinn minnþví hún náði þessu af en það var líka mjög vont en samt svo gott þegar hún var búin að ná þessu af. Gunnhildur er bara æði. Hún lætur mann sko vita ef maður stendur sig vel og það er það sem maður þarf maður þarf hrós. Og auðvitað hrósa ég henni líka. Og hún líka veit svo rosalega mikið um allt. Hún minnir mig mikið á Bergný vinkonu sem maður gat spurt einhvað og hún bara svaraði. En svo gerðist ekkert meira merkvert þennan daginn.
Hjólið fékk að reyna á sig núna og líka náttla aðeins í gær þegar Gummi labbaði með það út í olís að setja loft í það og svo hjólaði ég heim. Í morgun hjólaði ég svo í vinnuna en það er svona hálf bremsulaust og mig vantar hjálm. Ekki gott hrakfallabálkur hjálmalaus á bremsulausu hjóli.
Var búin að vinna klukkan 6 og kom heim og eldaði svo gekk ég frá spjallaði svo aðeins við Dæju nágranna minn og yfirmann og fór svo heim og er bara búin að vera í tölvunni síðan.
En jæja læt þetta gott heita í bili. Blogga ekki aftur fyrr en 3 eru búnir að skrifa í athugasemdir má samt alveg vera sá sami sem skrifar hehe En jæja bæbæbæbæbbbæ
Eldri færslur
- Desember 2010
- Október 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nota bene
www.mbl.is
Aðal fréttavefurinn
www.barnaland.is
Hér er aðal fjörið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 1150
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ert nú meiri klaufin ,en þú plumar þig ,ég lofa því .Það á allt eftir að ganga upp hjá þér ,sko þegar ég flyt austur.En ég lofa að skrifa meira á morgun segjir sá lati er svo þreitt og tauguðbæbæ í bili
Mamma unga (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 21:41
Kvitt!
Svanhildur Eysteinsdóttir, 16.7.2008 kl. 21:15
Jæja hvernig væri að fara að blogga,og láta vita hvernig er í vinnunni tdmig vantar lestrarefni
Unga Mamma (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 21:16
hei hvernig væri að fara að koma sér að því að blogga góða mín það eru komnar 5 beiðnir góða mín .Ekki svindla svona
Ólöf Karlsdóttir, 19.7.2008 kl. 00:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.