10.7.2008 | 19:07
Dettur ekkert í hug sem fyrirsögn :(
En ég er samt í smá fíling til að blogga.
Í dag vaknaði ég ekki fyrr en klukkan 12:40 og var sko mjög reið út í sjálfa mig fyrir að sofa svona en hei manni hlýtur að vera fyrigefið þar sem ég er í sumarfríi Reyndar svona mér til málsbóta þá vaknaði ég klukkan 9 hljóp upp pissaði og las svo einn kafla í bókinni minni og svo ákvað ég að kúra aðeins lengur. Ætli mér verði ekki fyrirgefið.
Við Gummi fórum í gær með Lillu upp á snjóflóðavarnagarða og leyfðum henni að hlaupa frjáls en hún var einhvað óvenju óþekk að koma inn í bíl og fór aðeins í burtu frá okkur og var einhvað að þefa. Við Gummi ákváðum að fara og setjast inn í bíl og gá hvort hún myndi ekki koma og Nei hún leit bara á okkur og það var eins og að hún væri að segja- þið mynduð ekki þora. Svo lét hann bílinn í gang og hún leit aftur á okkur en hélt svo áfram að þefa en var samt svoldið vör um sig en þegar Gummi lagði af stað ( bakkaði aðeins) þá kom hún sko hlaupandi, hún ætlaði sko ekki að vera eftir.
Klósettið á Urðarteigi er farið að leka. Þannig að ég og Gummi kíktum aðeins í byko áðan og erum farin að tala í alvöru um að taka baðherbergið í gegn. Höldum að það kosti svona 300 þús kallinn svo kannski ég búi bara til svona styrktarreikning þar sem fjölskylda og vinir geta lagt inn. Og líka þeir sem langar að gera góðverk. Er búin að ákveða að fá vegghengt klósett og þá verður líka mun auðveldara að þrífa þarna inni
Vá, hvað maður er orðinn sjúkur ég er orðin svo væmin einhvað að um leið og dagvaktarauglýsingin byrjar þá fer ég bara að gráta.
Prinsessa Garðars og Freydísar er svo sæt. Ég er búin að búa til nafn á hana en ég ætla ekki að segja það hér þessu nafni laust í mig um leið og ég sá hana. Svo er bara að sjá hvaða nafn foreldrarnir velja það verður fallegt prinsessunafn. Ég og Gummi fengum að sitja yfir henni áðan á meðan Garðar og co skruppu aðeins og hún var svo góð grét pínu en allt var búið þegar hún fékk hreina bleiu.
Stjórnmál eru farin að fara í taugarnar á mér það er að segja ef þetta kallast stjórnmál. Sko eins og með bíómiðann þeir urðu að hækka hann úr 600 kr upp í 800 kr vegna þess að dollarinn var svo hár en þegar hann lækkaði aftur þá datt þeim sko ekki í hug að lækka hann aftur, og svona er þetta með bensínið líki, þeir eru búnir að hækka það upp úr öllu valdi og loksins þegar það kemur lækkun þá lækkar það ekki í samsvarandi og heimskaupsverð og hvað gerum við Íslendingar réttum þeim vaselinið.
Aseneth og Maríana komu heim í dag og er ég að vona að Geiri verði duglegur að taka myndir. En jæja ætla að fara að hætta þessu bulli set inn eina mynd af Á***** H**** prinsessu Garðars og Freydísar.
Eldri færslur
- Desember 2010
- Október 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nota bene
www.mbl.is
Aðal fréttavefurinn
www.barnaland.is
Hér er aðal fjörið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gott að leyfa Lillu að hlaupa um ,svo er bannað að sofa svona lengi nema bara þegar maður er þreittur,já það er auðvelt að gráta þessa dagana,og ég er hætt að pirra mig á þessum hækkunum ,launin duga ekki það hækkar allt nema launin.Enn knúsaðu Garðar og Freidísi frá mér og segu til hamingu með prinssesuna ,ég þarf að kaupa eitthvað handa henni voð sætt.En kveð í bili bæbæ
Ólöf Karlsdóttir, 10.7.2008 kl. 23:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.