22.5.2008 | 22:04
Friðrik Ómar og Regína Ósk :)
Innilega til hamingju með sigurinn. Þið stóðuð ykkur frábærlega Vá ég varð alveg hoppandi glöð þegar það var sagt að Ísland færi áfram. En það sem ég var búin að spá fór ekki alveg eins og það átti að fara ég spáði því að þessi lög færu áfram ekki í þessari röð samt.
Ísland, Svíþjóð, Úkraína, Czeuch Rebublic, Króatía, Búlgaría, Danmörk, Kýpur og Makedónía þetta eru þau sem ég hefði kosið en ég gat ekki valið lag númer 10.
En þau lög sem fóru áfram eru Úkraína, Króatía, Albania, Ísland, Georgía, Danmörk, Svíþjóð, Lettland, Tyrkland og Portúgal.
Annars fannst mér keppnin mjög vel heppnuð. Og segi bara enn og aftur ÁFRAM ÍSLAND.
Ég var að vinna í dag frá klukkan 9 til 7 og verð svo frá 9 til 7 á morgun líka Finnst sko ekki gaman að vera til 7. Ég dreif mig alveg þokkalega mikið heim úr vinnunni til að ná Íslenska laginu og ég rétt náði því. Sem betur fer.
Nú fer að styttast í að ég fari í Sumarfrí og mig hlakkar svo mikið til. Það er svo erfitt að bíða. Mig langar alveg geggjað mikið að fara út með Sússu og þeim en það verður að bíða betri tíma þar sem sumir hafa áhyggjur af mér í hinu stóra landi Þannig að það er eins gott að Sumarið hjá mér verði gott. Er búin að ákveða hvenær ég kem suður og það fær enginn að vita af því nema sá sem sækir mig á flugvölinn í Reykjavík
Ég fór til Tannlæknis í gær og þar fékk hann sko að pína mig. Fyrst var ég svo stressuð fyrir deyfingunni en þegar hún var búin þá var ég farin að anda léttar en Nei deyfingin dugði ekki svo að hann þurfti að deyfa aftur og í þetta sinn inn í gómnum og það var sko ekki GOTT Langaði að biðja um verðlaun eftir þetta en það fékk ég náttla ekki ég fékk bara að borga og það var sko ekkert smá. En hvað gerir maður ekki fyrir heilbrigðar tennur Nú á Tannlæknirinn minn bara eitt tækifæri eftir til að pína mig allavega næstu 6 mánuði .
Bensínið ætlar ekkert að hætta að hækka held ég. Maður keyrir fram hjá í hádeginu og þá er það í einni tölu og svo keyrir maður aftur fram hjá eftir vinnu og þá hefur bensínið alltaf hækkað um einhverjar krónur. Kannski að það sé rétt hjá Kalla bróðir mínum þetta eru klukkur ekki tafla sem sýnir hvað bensínlíterinn kostar. Ég meina fyrst er klukkan 15 47 og næst þegar maður keyrir fram hjá þá er það komið upp í 16 22 eða einhvað álíka Þoli ekki að eyða peningum.
Ég veit ekki hvað ég á að röfla meira í ykkur þannig að ég kveð í bili.
ps. Kolla mín hvernig gekk vinnuviðtalið????
Eldri færslur
- Desember 2010
- Október 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nota bene
www.mbl.is
Aðal fréttavefurinn
www.barnaland.is
Hér er aðal fjörið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.