6.5.2008 | 23:34
2 Dagar :)
Vá hvað ég á erfitt með að bíða og mig hlakkar svo til að fá að hitta og knúsa fjölskylduna mína. Mamma fær vonandi lyklana af nýju íbúðinni á Fimmtudaginn en átti að fá í dag. Það besta við nýju íbúðina er að þar er Baðkar og vá hvað ég ætla að fara í bað þar. Mamma segist ætla að draga mig og Gumma í bláa lónið á Sunnudaginn og það verður vonandi gott veður.
Það á að banna mig inn í eldhús alveg sama hvað ég er að gera. Sko, snillingurinn ég fór að elda kjúkling og var einhvað að bisast við að ná forminu út úr ofninum og rak hendina ( í stóra og klunnalega ofnahanskanum) í járnið og svo tek ég hendina út og hanskinn logar. Fyrstu viðbrögð mín voru náttla að blása og það slokknaði en mér var sagt að ég ætti ekki að gera það Man það næst.
Annars er bara búið að vera vinna hjá mér og það er samt búið að vera fínt. Góðir og skemmtilegir dagar við höfum líka geta hlegið mikið í vinnunni. Ég geri nú samt ekki mikið eftir vinnu annað en að hugsa um heimilið hanga í tölvunni og horfa á tv. Og eins og er núna þá er ég að telja niður þangað til ég kemst suður vá hvað börnin mín eru ábyggilega orðin stór og Davíð ætlar sko að fá að lesa fyrir mig. Þorsteinn Ingi og Thelma Lind eru búin að vera alveg rosalega dugleg að hjálpa Mömmu að pakka og svona sem er náttla bara fínt. Það er náttla erfitt verk fyrir höndum.
Elsku pabbi minn hefur verið mér mjög ofarlega í huga síðustu daga og ég finn lyktina af honum þannig að ég veit að hann er hér hjá mér. Ætli hann sé ekki að lesa bloggið mitt. Þess vegna sé ég svona dugleg að blogga. En ég sakna hans svo sárt. Langar svo að sjá hann, tala við hann og vera bara með honum. Reyndar tala ég við hann á hverjum degi hvort sem það er upphátt eða í hljóði og það er bara gott og hann fær að vita af öllu sem ég geri. Vá, pabbi minn ég sakna þín svo sárt, en samt finnst mér svo erfitt að hugsa um að fara til Kef og sitja í sætinu sem þú sast alltaf í og sjá öskubakkann þinn og allt það. Vonandi verður það ekki alltaf svona erfitt. Ég veit að þú ert hjá okkur öllum stundum.
Jæja þá er ég búin að segja ykkur frá því helsta sem á daga mína hefur drifið. Ætla að fara að koma mér í bólið Góða nótt og takk fyrir Kolla og co fyrir að kvitta :)
Eldri færslur
- Desember 2010
- Október 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nota bene
www.mbl.is
Aðal fréttavefurinn
www.barnaland.is
Hér er aðal fjörið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já þú og eldhús eigið enga samleið ,þú heldur það humm það lærist smátt og smátt lofa því
Já það er erfit að vera án Pabba þíns ,ég vona að það lærist að búa án hans
En mig vatar svo oft að tala við hann
En veit að hann er í kring um okkur alla daga
Ef mér líður illa fin ég liktina af honum misjafnlega sterka fer eftir líðan minni
En nóg í bili sjáumst á Föstudag bæbæ Mamma
Mamma (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 23:43
Jæja skvís nú er bara 1 dagur þangað til við sjáum ykkur. Hlökkum mikið til. Mamma þín er búin að fá lykilinn og það verður fjör að flytja með henni um helgina. krakkarnir á Akurbraut ætla að hjálpa til. Vorum uppi í flugstöð áðan að tína rusl og hreinsa tjörnina. Jæja nóg í bili hittumst á morgun ( nú teljum við tímana ;ekki dagana) Keyrið varlega knús knús Kolla og co
Kolla (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 20:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.