14.4.2008 | 22:29
Hafið þið spáð í því?
Hvað tíminn er ógeðslega fljótur að líða þegar hann á ekki að gera það.Ég tók eftir því um helgina. Stefnan var tekin á að Berglind kæmi um helgina, en það sem ég vissi ekki var að Mamma var búin að ákveða að koma líka J Þannig að Gummi fór upp á Egilstaði að ná í þær konur og koma þeim niðureftir svo þær gætu strítt mér mikið. Gummi reyndar vissi allan tímann að Mamma ætti að koma hehe. Berglind kom til mín í vinnuna og ég sagði hva hvar er Gummi? Þá heyrist í henni hann fór út í olís og ég náttla bara okey svo er hún einhvað að fylgjast með mér kemur þá ekki einhver kona til mín inn í Grænmetiskæli og segir Áttu nokkuð til vínber og góðan ég ætlað að fara að benda henni á þau en er þetta ekki bara þá hún Mamma gamla. Þannig að það voru mikil fagnaðarlæti í grænmetiskælinum þann daginn... Eftir þetta var maður með fast bros á andlitinu sem bara náðist ekki af og var maður farin að telja mínóturnar þangað til ég kæmist heim. Þegar heim var komið var Tengdapabbi heima og hann var að hjálpa Gummanum mínum að setja upp hurð í svefnherberginu okkar. Verðum nú að geta lokað okkur inni þegar maður er með gesti ég meina hver veit hvað er í gangi þarna inni á næturnar. JMamma var búin að elda hakk og spagetty þegar ég kom heim þannig að maður gat eiginlega bara sest strax og nært sig ekki veitti af eftir ævintýri dagsins J Svo var bara kósý kvöld hér heima það var horft á útsvar og bara átt góða kvöldstund. Á Laugardaginn skelltum við konur okkur í sundlaugina hér. Berglind og Mamma fóru báðar í báðar rennibrautirnar en ég bara í minni mér svelgdist svo mikið á að ég þorði ekki í hina L ( já ég veit að ég er chicken) Skulda Mömmu reyndar ennþá ís því ég sagðist ætla að gefa henni ís ef hún færi í rennibrautina J Um 2 leitið var svo bara komið sér upp úr og farinn smá rúntur fórum á Reyðarfjörð í krónuna og svona, það er sko alltaf hægt að versla. En svo var farið heim að borða Pizzu a la Gummi en hún varð ekki eins góð og hún átti að verða vegna þess að Mamma og Gummi misskildu hvort annað svo illilega ( Gummi hélt að mamma hefði keypt Pissasósu en hún keypti spagetty sósu þannig að það var bara tómatsósa þann daginn) J Svo var aftur bara letikvöld fyrir framan sjónvarpið. Sunnudagurinn rann upp bjartur og fagur ( eins og er náttla alltaf hér fyrir austan) og það var bara borðað saman morgunmat og pakkað niður og sollis og svo var haldið af stað í aðra ævintýraferð. Stefnan var tekin á Egilstaði og var einhvað aðeins brallað þar. Þar var farið á rúnt og búðarferð ( eins og ég segi alltaf er hægt að versla) ;) Svo var bara komið við á hemili tengdó og þar voru mamma og Berglind nærðar fyrir flugið. Um 5 leitið var haldið upp á Flugvöll og þeim konur skildar eftir þar á meðan ég og Gummi fórum út að Lagarfljótsorminu og fylgdust með þeim fara í loftið. Þegar þær voru svo komnar í háloftin þá héldum við Gummi okkar leið aftur heim til tengdó þar sem Gummi var klipptur og hann varð svo sætur varð sko skotin í honum aftur. Þegar hingað var komið til sögunnar var bara brunað niðureftir og svo var bara Halló fallega rúm... En núna saknar maður kvennanna sinna svo mikið þetta var bara allt of fljótt að líða. Lilla mín var líka ekki sátt þegar ég og Gummi komum bara 2 til baka af flugvellinum hún hoppaði á milli glugganna og vældi og vældi L En jæja nú veit ég ekki hverju ég get bullað meira í ykkur. Er bara að bíða eftir að Thelma Lind frænka verði búin að venjast lyfjunum þá ætla ég sko að fá báðar prinsessurnar mína til mín...
Eldri færslur
- Desember 2010
- Október 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nota bene
www.mbl.is
Aðal fréttavefurinn
www.barnaland.is
Hér er aðal fjörið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jæja helgin of fljót að líða skrifa meira annað kvöld er að fara í bólið bæ í bili
Mamma (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 23:14
Hæ Hæ Ásdís.
Haha ég vissi að hún ætlaði austur og ætlaði að djóka í þér
Gott að þetta heppnaðist hjá henni .
Knússý Knússý.Vallý
Vallý (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 21:27
Já helgin góða var sko fljót að líða Er búin að ákveða að koma þér á óvart aftur .Það var notalekt að fara í sund og slaka á í heita pottinum ,og fara í rennibrautirnar.Og við áttum 2 kósi kvöld við 3,og vá hvað lilla var glöð að sjá okkur Berglindi hún hoppaði og skoppaði og sleikti okku hún var svo kát .og já það hepnist sko að koma henni á óvart gaman að sjá framan í þig þegar þú sást mig þú trúðir ekki þínum eigin augum haha .En þetta er nóg í bili sjáumast 9 eða 10 mai kv Mamma
Mamma (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 22:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.