30.3.2008 | 20:55
Er allt að fara til FJANDANS???
Þá er ég að tala um allt saman sko launin okkar hækkuðu um alveg nokkrar krónur um síðustu mánaðarmót, en í staðinn er matvöruverðið að hækka eða komið upp í það sama og það var áður en þeir lækkuðu matvöru skattinn í 7 %. Þetta er náttla bara geðveiki. Nú er til dæmis bensínlíterinn kominn upp í 148 kr spáið í þessu, þetta er alveg bara ÖMURLEGT. Reyndar var ein sem ég er að vinna með við vorum að tala um að það á að fara að hækka mjólkurlíterinn upp í 100 kall og henni fannst það bara allt í lagi. Hún sagði að fyrst að fólk tímir að kaupa hálfan líter af kók á 100+ þá ætti fólk að tíma að kaupa einn líter af mjólk á 100 kr. Þessu er ég alveg sammála en ég væri frekar til í að þeir myndu reyna að halda öllu nauðsynlegu eins og matvörur og bensín á ráðanlegu verði en myndu frekar hækka allar ónauðsynjavörur eins og kók og snakk og nammi og allt það.
En nóg um það. Helgin er bara búin að fara í leti, við gummi gerðum tilraun til að fara upp á Egilstaði á Laugardaginn en við urðum að snúa við á skarðinu vegna veðurs bílarnir voru bara fastir þarna uppi og maður sá ekkert fram fyrir bílinn vegna snjófoks En svo í dag var fagridalurinn þungfær en við reddum skattaskýrslunni sem betur fer .
Vikan verður bara góð held ég. Fyrir þá sem ekki vita þá á ég afmæli á Fimmtudaginn og ég fæ að fara heim klukkan 5 Gerður ætlar að vinna fyrir mig frá 5 til 7 Svo ætlar Gummi að bjóða mér út að borða og mig hlakkar mikið til alltaf gott að borða góðan mat En jæja það eru komnir gestir best að fara að tala við gestina bless í bili :)
Eldri færslur
- Desember 2010
- Október 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nota bene
www.mbl.is
Aðal fréttavefurinn
www.barnaland.is
Hér er aðal fjörið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já það er sko allt að fara til fjandans á þessu landi ,hvað er í gangi bara en þetta hefur alltaf verið svona .Fyrst hækka allar vörur svo launin svo vörurnar aftur.En vá bensín í 148 kr ekkert smáræði það.En hvað viltu í afmælisgjöf gesti kannski ,eða hvað viltu hvað vantar þig .BÆbæ
Mamma (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 21:39
En ég er að fara að flytja bráðum
Mamma (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 21:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.