22.3.2008 | 10:48
Hef sko ekki verið að standa mig í blogginu.
Enda er nú kannski ekki neitt spennandi að gerast hjá mér. En við skulum reyna að segja smá frá.
Síðustu helgi ætlaði Berglind að koma og mig var búið að hlakka til alla vikuna. En Svo rennur föstudagurinn upp og Neinei þá er ekki pláss í vélinni. En jæja ég jafna mig á endanum þegar Gummi hringir og segist ætla að bjóða mér til Akureyrar varð sko geggjað ánægð gistum á hóteli og allt saman. Garðar og Freydís pössuðu Lillu fyrir okkur og þökkum við þeim kærlega fyrir það En Lilla var ekkert sérstaklega sátt grét mikið og neitaði að borða þangað til að við komum aftur þá fór hún beint í matardallin sinn.
En á Akureyri var bara farið í smá verslunarleiðangur fórum í rúmfatalagerinn og keyptum dúk á borðið og herðatré og svona. Og svo var farið í Hagkaup. En þegar ég fór inn í Hagkaup þá pípti þjófavarnarkerfið á mig sko þegar ég labbaði INN ótrúlegt sko ég er viss um að það hefur verið að vara Gumma við að fara með mig þarna inn. En ókey við stóðum þarna eins og vitleysingar þangað til að það kom einhver stelpa og tala við stelpuna sem vinnur í afgreiðslunni og fyrsta sem hún spurði mig var hvort ég væri í fötum frá útlöndum og þá fattaði ég að ég var í peysunni frá sússu. Þá var einhvað merki inn í henni sem maður á að klippa úr og ég varð að fara inn í mátunarklefinn í Hagkaup og taka þetta merki úr. Þetta var sko algjör ævintýraferð.
En við vorum komin frekar snemma heim eða við lentum í mat hjá Garðari og Freydísi fengum kjötfarsbollur í káli og ég gat borðað það án þess að verða veik En Páll Helgi sagði mér að það hafi verið padda með ljótt andlit sem vildi eiga húsið hans alveg frábært sem þessum börnum dettur í hug.
En já svo gekk vikan bara eins og í sögu og ég fór í vinnuna og svona. En þetta var náttla bara stutt vika og nú er maður bara í páskafríi og veit eiginlega ekkert hvað maður á af sér að gera
Gummi er á næturvöktum núna þannig að ég og Lilla erum bara mest tvær að dunda okkur. En jæja fer að láta þetta vera gott í bili og munið ekki borða yfir af ykkur af páskaeggjum :)
Eldri færslur
- Desember 2010
- Október 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nota bene
www.mbl.is
Aðal fréttavefurinn
www.barnaland.is
Hér er aðal fjörið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jæja þar kom bloggið sem ég er búin að vera að bíða eftir
Mamma (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 23:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.