4.3.2008 | 10:58
Erfið byrjun á degi.
Vaknaði klukkan 6 í morgun og fór á klósettið hélt ég þyrfti bara að pissa en Nei nei er mín ekki komin með bullandi niðurgang, Sit á klóesettinu í svona 30 mín en fer svo niður aftur og er þá svo kalt að ég verð að hafa 2 sængur. En jæja vakna svo um 8 ætlaði að fara að gera mig reddý fyrir vinnu og ætla að fara að hleypa Lillu út en Nei ég næ varla að krækja í ólinu og þarf að komast á klósettið aftur og ég er búin að vera þar af og til í allan dag. Og til að toppa þetta þá er ég líka á bullandi túr og með bullandi túrverki.
En annars var helgin mjög góð. Við Gummi fórum yfir á Eskifjörð til Garðars og Freydísar, tókum Garðar reyndar með því hann var hérna niður frá og þegar við komum þangað var Freydís að baka skonsur. En jæja við stoppuðum þar smá stund og brunuðum svo yfir aftur.
Laugardagur, Ég og Gummi vöknuðum snemma og fórum upp á Egilstaði og versluðum alveg helling. Ég keypti mér eyrnalokka, fataskáp, inniskó, heimasíma og svo smá mat í bónus. Þvílíkur verðmunur þar og hérna í Samkaup tökum sem dæmi Ben&jerrys ís hann kostar 749 hjá okkur hann kostaði að mig minnir 549 kr í bónus og þetta er sko alveg nákvæmlega sami ísinn... En jæja nóg um það svo náttla fórum við í Kaffi til Tengdó og þar voru Þóra, palli, Benedikt og Oddný og þar að auki voru Heiða og Amma hans gumma og svo að sjálfsögðu tengdó. Og það var mikið fjör og mikið gaman.
Vorum svoldið að fylgjast með Benedikt árna og Oddný eddu þau fóru inn í herbergi til Heiðu og svo var Benni allur í sjónvarpinu og vídeoinu en Oddný var að rífa bækurnar úr hilluni og svo til að toppa allt þá stóð Benni ofan á bókunum og náði lengra inn í hilluna.
Um kvöldið var svo brunað beint hérna niðureftir og byrjað að elda. Garðar, Freydís, Páll helgi og Magnús Orri komu öll hingað í mat og það var mjög fínt.En svo urðu þau að bruna yfir fjallið með 2 þreytta stráka. Og við Gummi gengum bara frá hérna heima og fórum svo að sofa.
Sunnudagurinn: Löguðum til allan daginn og breyttum hérna heima, fórum reyndar stutta ferð yfir á Eskifjörð og tengdó komu á móti okkur þau fengu lyklaborð hjá okkur en annars var allt tekið í gegn. En jæja fer að segja þetta gott í bili. Reyni kannski að setja inn fleiri myndir
Eldri færslur
- Desember 2010
- Október 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nota bene
www.mbl.is
Aðal fréttavefurinn
www.barnaland.is
Hér er aðal fjörið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jæja bara nóg að gera ,sitja á kamrinum gaman eða hitt þó heldur .og bara eyða peningum
og svo er bara verið á flakkinu
Verð að fara að koma austur svo ég geti verið á flakkinu með ykkur hehe
bæbæ í bili kveðja sú gamlaMamma (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 01:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.