Færsluflokkur: Bloggar

blablabla

Góðan daginn. Um helgina var helling brallað hjá mér og Gumma við byrjuðum á því að fara bæði í vinnu á Föstudaginn og eftir það fórum við upp á Egilstaði og vorum þar svo tókum við þá skyndiákvörðun að fara að veiða, en veiddum ekki neitt, enda er ég enn að hugsa hvernig ég nennti að keyra í einn og hálfan tíma til að leggjast í aftursætið og fara að sofa Sleeping Meiri vitleysan í manni.

Við komum heim úr þessari veiðiferð um 7 um morguninn og svo vaknaði ég um hádegi fór í sturtu og svona og svo var okkur boðið í grillveisla heima hjá tengdó til að halda upp á að Bjössi bróðir hans Gumma er orðinn 30 ára W00t Til hamingju Bjössi. Ps, Heiða systir hans Gumma kom heim frá tyrklandi og hún Gaf Gumma kúrekahatt og svo gaf hún mér HRING og tösku og ég er enn að stríða Gumma yfir því að systir hans var á undan honum að gefa mér hring:)

Á Sunnudaginn vaknaði ég hress og kát um klukkan 12 eins og vanalega og fór framm. Svo ákváðum ég og Gummi að fara í Mjóafjörð og þar var stuð alveg endalaust fallegt þar. svo var komið heim og farið að sofa. Svo er bara verið að fara suður á Miðvikudaginn flýg með Geira bróðir Grin En svo ætlar Gummi að reyna að koma á bílnum suður fyrir helgina. En jæja nú ætla ég að hætta þessu blaðri blogga ábyggilega meira þegar ég kem suður en ætla að reyna að setja inn myndir:)


blogg dagsins

HELLÚ.

Humm ákveð að blogga og veit svo ekkert hvað ég á að segja. Hehe

En ég skal reyna að bulla einhvað í ykkur.Helgin hjá mér var mjög fín, fór samt ekki neitt var loksins heima í slökun. Eldaði pizzu í gær eða Gummi og ég þreif allt hér og svo fengum við feðgana í mat og það var bara gaman. Horfum á Billy madison sem er bara alveg snilldar mynd hehe. En veit ekki hvað ég á að bulla meira það les þetta hvort eð er enginn, En Kalli bróðir minn og hans fjölskylda ætlar að koma næstu helgi og það verður sko bara gaman, Jei hlakka til ætla að búa til Lasagne fyrir þau en nenni þessu ekki meir ætla að henda mér í sturtu og fara svo að kúra hjá kallinum BLESS


Innlit/ Útlit (Úps)

Fór illa að ráði mínu áðan. Gummi var nýbúinn að vera að elda handa mér þetta fína sítrónukryddaða læri alveg rosalega gott Takk GUMMI minn InLove En svo fór ég að horfa á innlit útlit og fór frekar illa að ráði mínu Undecided Það byrjaði á því að Einn maður var með svo geðveikt bað hjá sér og mig langaði sko bara að fara í bað og ég var að segja við Gumma að ég hefði frekar átt að fá mér þann mann. Ekki nóg með það að þá kemur annar maður sem var með barn á leiðinni og svo kom næsti maðurinn sem var að elda svo góðar kjúklingabringur Og Gummi var farinn að horfa svona frekar mikið á mig og ég fór að segja við hann að hann þyrfti að fara að finna sér einhvað að gera svo ég myndi vilja hann. Svo sagði ég við Gumma - Nei nei Gummi minn ég elska þig þó þú eigir ekki fallegt bað, Það er ekki barn á leiðinni og þú (næstum búin að segja eldar ekki góðan mat. Úps ég fæ ábyggilega bara núðlur næstu mánuði fyrir þetta.

En nóg um það. Ég fer í sumarfrí eftir aðeins meira en mánuð og mér er farið að hlakka mjög mikið til ætla að fara suður og vera þar í svona viku. Og svo fáum við ábyggilega húsið afhent áður en ég fer að vinna aftur. Og fyrir þá sem ekki vita þá var ég og Gummi að kaupa okkur hús eigum að fá það afhent 1 Júlí.

En jæja Gummi vill fara að horfa á Get rich or die tryin best að fara að kúra hjá honum. Reyni að blogga meira á morgun KOSSAR OG KNÚSAR Heart


Hehe

Nú er ég búin að vera að skamma Geira fyrir að blogga ekki fyrir Maríönu og svo blogga ég EKKI sjálf hehe ég verð að ráða fram úr því.

Það er nú samt eiginlega aldrei neitt að gera hjá mér nema þetta sama gamla VINNA;VINNA OG VINNA hehe geri yfir leitt ekki mikið í frítíma mínu. En hér kemur smá blogg.

19 Apríl eða Sumardaginn fyrsta var ég og Gummi í fríi svo að við kíktum yfir á Eskifjörð að hitta hann Garðar vin okkar í nýja húsinu hans. Kíktum þar í kaffi og vorum þar í smá tíma. Svo kíktum við á Egilstaði í mat og kíktum svo á Seyðisfjörð þar var alveg rosalega gaman. Vorum þar alveg framm á nótt og fórum svo og vorum hjá Tengdó um nóttina þar sem Mamma var að koma um morguninn.

20 Apríl komu Mamma og Berglind. Ég og Gummi fórum aðeins að leita að ísskáp áður en að þær komu en svo var bara haldið af stað á Nesk þar sem ég þurfti að mæta í vinnu klukkan 1 en ég var bara að vinna til klukkan 6 og þá kom ég heim og þar var bara legið í leti.

21 Apríl var eiginlega bara legið í leti reyndar fórum við í sund en það var eiginlega það eina sem ég gerði nema ég fór út að borða með stelpunum úr vinnunni um kvöldið.

22 Apríl þá vorum við komin út um hádegi kíktum upp á Egilstaði og fengum okkur smá rúnt upp í Hallormsstað þar hitt Mamma einhverjar stelpur sem hún var að vinna með sem eru í húsmæðraskólanum og þær sýndu okkur eiginlega allt sem var bara cool og svo var haldið í að skoða trjásafnið í Hallormstað fengum okkur smá rölt þar svo fórum við í Kaffi til tengdó. Ákváðum að fara aðeins á eiðar og sýna mömmu þann stað og svo var bara haldið aftur til Tengdó í mat og svo var skilað Mömmu og Berglindi til baka. Held að Pabbi hafi verið mjög ánægður að fá þær aftur :)

En jæja blogga meira seinna


Páskadagur

Góðan daginn!
Nú er alveg heilmikið búið að vera að gera hjá mér. Í gær var skírn hjá henni maríönu litlu sætustu frænku minni hún var rosalega stillt og góð í kirkjunni. Og svo eftir skírnina var haldið heim til Geira og Aseneth og þar var þetta fína kaffi og kökur. Eftir það var farið heim og þar var Berglind knúsuð og kysst því hún átti afmæli í gær
Kissing  Til hamingju Berglind


En svo komu sorgarfréttir hún Amma mín Súsanna lést í gær og vil ég bara segja við hana ég mun alltaf elska þig og muna eftir þér Elsku Amma mín 
     Kissing Og ég veit að nú er hún á himninum að fylgjast með okkur. 
En nú skal ég bara láta þetta gott heita í bili stefnt er að því að fara í bíó í kvöld á Bean in holiday blogga bara meira seinna.

jæja komin suður.

Halló! Þá er maður loksins komin suður sem er sko bara fínt við Gummi lögðum af stað um klukkan 7 í gærkvöldi og vorum komin klukkan 4 um nóttina.

Í dag hefur svo verið alveg helling að gera ég vaknaði um 10 og fór að borða og leika við Lillu svo kom Geiri í heimsókn og svo bættust Nonni, Davíð og Thelma lind í hópinn. Krakkarnir komu með hjartasúkkulaði mola handa mér  Kissing  Takk fyrir.
En svo var leiðinni haldið upp á Sjúkrahús og hitta Pabba og svo fórum við til Geira og Aseneth og Maríönu. Ohh hún var svo sæt alveg yndisleg og hún var svo góð hjá mér Wink  Svo var farið í bónus og verslað ég og Gummi keyptum okkur páskaegg og sollis.
Svo þegar heim var komið kíktu Kalli og Kolla og börnin og það var fínt.  En nú ætla ég að fara að koma mér í bólið er að leka niður af þreytu Gasp  Góðanótt

Fyndið :)

Hæhæ þið fáu sem lesið bloggið mitt Kissing Má ég biðja ykkur um eitt?? Mig langar svo að biðja ykkur um að kvitta fyrir ykkur það er svo gaman að sjá hverjir nenna að lesa þetta. Annars gæti ég alveg eins talað við vegginn hérna hjá mérErrm En nóg um það.

Í gær kíktum við Gummi á Akureyri fórum í Rúmfatalagerinn og Hagkaup og svona versluðum okkur tölvuborð og svona núna vantar okkar bara tölvustól við sáum engan sem okkur fannst þægilegur Angry En það var bara hörkufjör fórum á Subway sem var sko bara gott hehe. EN svo fórum við að borða á Pizza 67 á Egilstöðum og á meðan við vorum að borða kom kona inn með kransaköku og mig langaði svo að segja hei ég á ekki afmæli fyrr en á þriðjudaginn W00t En svo þegar ég kom á Norðfjörð þá fór ég að hitta stelpurnar úr vinnunni sem var bara gaman fór reyndar ekki á ballið.

En eitt sem ég var að spá þegar ég fór einu sinni suður með flugi þá var ég orðin frekar svöng og eins og flestir vita þá er ekki boðið upp á neinn mat í flugvélinni nema kaffi,vatn, te eða svala og ég lenti í því að þiggja einn kaffibolla en þegar ég opna borðið þá blasir við mér Hangikjöt, uppstúf,baunir og kartöflur og það var bara erftitt að horfa á þetta ég sé enn þá eftir því að hafa ekki beðið um hníf og gaffal Grinþað hefði verið nokkuð fyndið hehe

Ég gerði alveg stórmerkilega uppgvötun í morgun, sko Gummi var að gera þarfir sínar og beint fyrir ofan klósettið þar er svona skítafílusprey en hann gat að sjálfsögðu ekki spreijað svo ég fer inn á eftir honum þannig að ég fattaði það að Djöfullinn bjó karlmenn til en til að hafa hemil á körlunum þá bjó Guð til konuna Devil 

Og eitt í viðbót í gær var viðtal við einhvern mann frá stöð 2 í sambandi við að þeir hækkuðu áskriftargjaldið um einhver 9 prósent eða einhvað og þeir segja að ástæðan fyrir því hafi verið að það sé orðið svo dýrt að kaupa sjónvarpefni og svoleiðis en ef þið spáið í því að þeir gætu hafað hækkað það bara til að hafa opna dagskrá 1,2  og 3 Apríl hehe þetta er bara fyndið Halo

Okey nú er ég komin í stuð en það er bara þetta eina í viðbót svo lofa ég að tala bara við vegginn eða einhvað. En Allavega það sem ég tók eftir í gær er það að það munar 4 krónum á bensínlítranum á sömu bensínstöðinni á Akureyri og Egilstöðum, Ég meina Halló þetta er sama bensínstöðin og sama bensínið hvernig geta þeir þetta????? og ég skal koma með verðið það er 111 krónur líterinn á Akureyri og 115 á Egilstöðum pælið í þessu.

En hafið það gott og ég sé mína fjölskyldu eftir aðeins 3 daga :)

Ps. Geiri minn villtu fara að blogga fyrir Maríönu Halo takk takk 


Er kannski kominn tími á eins og eitt blogg :)

Hjá mér hefur voðalega lítið verið að gerast nema það að ég er að fara suður eftir 9 daga :) og hlakkar alveg geðveikt til. Það á að skíra litlu frænku mína þann 7 Apríl og ég fæ að halda á henni undir skírn og vera skírnarvottur Bara cool enda á ég og litla frænka eftir að verða alveg ROSALEGA  góðar vinkonur :)

Annars veit maður ekkert hvað maður á að blogga meira það gerist aldrei neitt í þessum bæ ég og Gummi höfum reyndar verið dugleg að fara út á rúntinn og í gær kíktum við smá rúnt og Gummi sagði eigum við ekki að bjóða garðari á rúntinn bara svona svo að það sé einhver skemmtilegur hér og ég bara TAKK hehe Það er gaman að þessu en ég nenni bara ekki að bloggar meira núna see ya


góðan daginn :)

Hehe ég er alltaf að skamma alla fyrir að vera ekki dugleg að blogga en svo er ég það ekki sjálf :)

En allavega hefur ekki verið mikið að gera hjá mér heldur en bara þetta venjulega sofa, skíta og éta og vinna :) Ég reyndar fór á smá djamm á Laugardagskvöldið og varð svo ógeðslega þunn að ég mun ábyggilega ekki detta í það aftur fyrr en eftir ár eða einhvað álíkaLoL

Mig langar svo að fara að hafa þetta svona spekingslegt spjall svona inn á milli því ég er alltaf að spá í öllu og eins að segja frá skemmtilegum sögum sem ég man eftir og er að lenda í enn þann dag í dag.

Það er til dæmis eitt sem ég er að spá í það er af hverju drekkur fólk???? Ég meina það drekkur verður óskýrt í kollinum og gerir einhvað sem það man ekkert eftir og sér líka eftir því sem það man. Pælið í hvað margir hafa haldið framhjá á djamminum og koma með þá afsökun að- Ég var svo full/ur og vissi ekkert hvað ég var að gera. BOMMM Eitt samband út um þúfur og fyrir hvað 5 tíma af sumbli??????? Eða hvað ???? Hvað er svona gott við áfengi???? Oft þegar ég dett í það þá hugsa ég alltaf ( Ég vona að ég verði ekki þunn á morgun) En allir vita að ég verð það FootinMouth Nú ætla ég að fara að hugsa þetta þannig ef ég fer út á djammið og drekk þá verð ég veik allan daginn eftir á er það sem ég vil????

Reyndar er til fólk sem kann að drekka eins og Gummi kærastinn minn og hann er alltaf að kenna mér ég skal koma með tvennt sem hann hefur sagt mér.

Sko ef þið eruð að drekka rauðvín eða annað álíkka hristið það aðeins til í munninum áður en þið kyngið það er gott og númer 2 DREKKA MIKIÐ VATN MEÐ

Hafið það gott og gangið hægt inn um gleðinnar dyr

 


Gleðifréttir :)

Litla frænka mín er komin í heiminn :) hún kom í gær og ætla ég sko að fara að kíkja á hana um páskana.

En annars kann ég ekki að blogga lengur veit ekkert hvað ég á að segja en ég skal reyna :)

Sko við erum að fara í skírn á Sunnudaginn hjá tvíburunum og ætlum líklegast upp í Egilstaði em helgina og vera þar bara alla helgina fara kannski í sund og svona :)

Annars var ég afskaplega dugleg í gær :) skúraði allt hérna hehe en heyrru ég nenni ekki að blogga meira skal reyna að vera dugleg við þetta en ætla að  setja inn mynd af nýjasta afkomenda í fjölskyldunni :)

maríana


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband