Halló halló...

Er ekki kominn tími á eins og eina bloggfærslu :) það er alveg helling búið að gerast hjá mér síðustu vikur svo það  er best að koma með smá blogg.

Eins og flestir vita þá er ég í fyrsta skipti að ná áramótaheitinu. En það var að í Desember 2009 þá ætlaði ég að vera nýbúin að eiga eða vera orðin ólétt. Og viti menn litla krílið er áætlað í heiminn 3 Nóvember. Og ég og Gummi erum svo ánægð.

scan0001Þarna er smá mynd af litla krílinu. Var komin sirka 12 vikur þegar þessi mynd var tekin. Smile

Annað er það að það hrundi einn veggur í viðbyggingunni hjá okkur svo að við urðum að rífa gömlu og setja upp nýja. Þess vegna er ég búin að vera tölvulaus frekar lengi. Við urðum sko að flytja út úr húsinu þar sem klóakið brotnaði, vatnið var tekið af og svo var klósettið í viðbyggingunni. En þetta er orðið rosalega flott og erum við að vonast til að geta flutt inn sem fyrst.

Annars er maður bara búinn að vera í sumarfríi og Lilla mín nýtur þess alveg í botn að hafa okkur svona mikið heima. En jæja er að fá hausverk og nenni ekki að blogga meira núna. Hafið það gott.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Já það er bara allt að gerast þessa daganna.Knús Mamsa

Ólöf Karlsdóttir, 2.7.2009 kl. 23:04

2 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús og kossar og ljúfur faðmur....:O)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 15.7.2009 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband